Magnús R. Einarsson skrifaði:
„Nú les maður á vefsiðu Ríkisútvarpsins að Haaland markaskorari norðmanna sé sturlaður. Það ku vera hámark sjúkheita og geðveiki, klikkunar og andlegrar bilunar. Haaland hinn sturlaði var i viðtali á einhverri sjónvarpsstöðinni og þótt honum mæltist ekkert sérlega vel, með takmarkaðan orðaforða á ensku þrátt fyrir að hafa búið á Englandi í nokkur ár, þá virkaði hann næstum normal. Hann staglaðist reyndar í sífellu á því að hann væri markaskorari eins og það væri nú ekki lýðum alveg ljóst. Ekki beint snoppufríður Haaland þótt hann sé íþróttamannslega vaxinn. En sturlaður?“