- Advertisement -

Óskiljanlegur þvættingur sem er engum samboðinn

Facebook:

Stefán Erlendsson skrifaði:

„Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingkona Miðflokksins, segist ánægð og stolt yfir því að hafa ekki undirritað siðareglur Alþingis og að hún muni ekki undirrita þær á meðan hún situr á þingi. Að hennar mati eru siðareglurnar ekkert annað en pólitískt „tæki fyrir meirihlutann til að berja á minni hlutanum. Það er það sem siðareglurnar eru, ekkert annað.“ Þingkonan útskýrir ekkert frekar hvernig siðareglurnar virka sem svipa eða vöndur í höndum meirihlutans né heldur hvaða skilning hún leggur í þessar reglur að öðru leyti. Kannski hefur hún aldrei lesið þær.

Finnst kjósendum Miðflokksins svona framganga boðleg í nútíma lýðiræðisþjóðfélagi? Að fulltrúi þeirra á Alþingi gefi skít í siðareglur sem þingið hefur sjálft sett sér og/eða samþykkt í byrjun hvers kjörtímabils frá því fyrstu siðareglurnar tóku gildi? Á þeim forsendum að þær séu valdatæki meirihlutans til að kúga minnihlutann?

Ég er búinn að lúslesa þessar siðareglur og get ekki með nokkru móti séð hvaða fótur er fyrir þessum skilningi þingkonunnar. Þetta er óskiljanlegur þvættingur sem er engum samboðinn – hvorki innan né utan þings…“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: