
Þröstur Ólafsson hagfræðingur skrifar:
Eina vísbending seðlabankastjórans voru væntingar til enn hærri vaxta. Það ríkir hugmyndafræðileg kreppa í Seðlabankanum.
Það var heldur dapurlegt að hlusta á seðlabankastjóra í Silfrinu. Hann hafði ekkert að segja þjóðinni. Hann benti hvorki þjóð né ríkisstjórn á neina útgönguleið út úr þeim ógöngum sem þetta neikvæða og rokdýra hringrásarhagkerfi okkar er komið í. Eina vísbending seðlabankastjórans voru væntingar til enn hærri vaxta. Það ríkir hugmyndafræðileg kreppa í Seðlabankanum.
Þeir virðast engin úrræði hafa nema gagnslitlar vaxtahækkanir. Ásgeir svaraði nánast öllum spurningum með „bæði kostir og gallar “ á öllu sem spyrlan lagði fyrir hann. Hann vildi ekki útskýra frekar hvort meintir gallar á upptöku evrunnar væru meiri en kostir, enda erfitt. Hann hefur kannski ekki hlustað á kollega sinn króatískan fyrr í mánuðinum. Sá gaf í skyn að spennan væri hagvextinum um að kenna, sem er alveg rétt. Kunni ekki við að segja að hægja þyrfti þar á. Gjaldmiðillinn er öxull hagkerfisins. Virki hann ekki sem slíkur eru fá önnur ráð en að skipta um, eins og við gerum þegar springur á bíldekki. Ásgeir faldi öll hugsanleg úrræði vandlega fyrir þjóðinni. Bara hærri vextir.