- Advertisement -

„Reykvíkingar gæta vel að borgarfyrirtækjum sínum“

Umræðan/Facebook: Þröstur Ólafsson hagfræðingur skrifaði:

„Það vekur ætíð athygli mína þegar íslenskir stjórnmálaflokkar taka nýja stefnu eða endurvinna gamla og gera að sinni. Eftirtekt mín er ekkert síður rifin upp ef ný nöfn upprennandi pólitískra áhrifamanna eru birt. Hvortrtveggja gerðist nú um helgina. Birt var mynd og frásögn af opinberri heimsókn Sigmundar Davíðs á Atreju ráðstefnu Nýfrjálshyggjusinna í Róm. Þar voru fyrirmenn þessarar skefjalausu markaðshyggju mættir til að brýna hnífana. Sennilega vildi formaður Miðflokksins kynna sig og flokk sinn og kynnast betur innviðum þessarar hreyfingar.

Nú hefur verið kynntur til sögunnar nýr efsti maður á lista Miðflokksins við borgarstjóirnarkosningarnar á komandi vori. Ari Edwald ný Reykvíkingur. Nýfrjálshyggjan og Ari eru ekki ekki sérlega framandi hvort öðru. Lesið bara atferlisskrá hans hvar hann hefur starfað.

Nú skulu Reykvíkingar gæta vel að borgarfyrirtækjum sínum. Komist Miðflokkurinn til áhrifa í borginni má telja víst að gerð verði atlaga að samfélagslegu eignarhaldi á orku fyrirtækjunum. Fyrir kosningar verður fátt um þau áform rætt. Þess vegna er Ari sóttur. Hann kann til verka á þessu sviði.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: