- Advertisement -

„Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur fyrir löngu þrotið örendið“

„Ráðdeild og sparnaður eiga ekki upp á pallborðið í pólitík okkar samtíma.“

Björn Jón Bragason.

„Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttir hefur fyrir löngu þrotið örendið en ráðherrarnir hanga samt sem áður á stólunum, enda sóknin í völd og vegtyllur allri pólitík yfirsterkari. Meginástæða þess að stjórnin er ekki löngu farin frá liggur einfaldlega í því að skatttekjur hafa aukist gríðarlega síðustu misseri, og ráðherrarnir fá að eyða fjármunum að vild í gælumál hvers og eins. Og þrátt fyrir allan tekjuaukann er ríkissjóður rekinn með miklum halla ár eftir ár undir „traustri fjármálastjórn“ Sjálfstæðisflokksins,“ segir meðal annars í góðri grein Björns Jóns Bragasonar.

„Vandi ríkissjóðs, sem og borgarsjóðs, liggur ekki í lágum tekjum heldur stjórnlausum útgjöldum. Ríki og borg hefur brostið vilja til að hafa hemil á eyðslunni og af því hlotist þrálát skuldasöfnun. Þannig hefur beinlínis verið unnið gegn stöðugleika og ríkissjóður og borgarsjóður mun verr í stakk búnir til að mæta óvæntum útgjöldum en ella.

Ráðdeild og sparnaður eiga ekki upp á pallborðið í pólitík okkar samtíma og það vekur ugg að helsta gagnrýni stjórnarandstöðunnar á fjárlög nú sem undangengin ár er einkum sú að ekki sé nógu miklu fé varið til hins eða þessa málaflokksins. Æskilegt væri að fram kæmu stjórnmálamenn sem legðu áherslu á sparnað og ráðdeild í opinberum rekstri. Segir mér hugur að slík sjónarmið eigi sér mikinn hljómgrunn meðal almennings sem fengið hefur sig fullsaddan af sífellt aukinni skattpíningu,“ skrifar Björn Jón.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: