Efnahagsmál: Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir boðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar ekki merkilegar.
„Það sífellt tönglast á að ríkisstjórnin sé með plan. Ef svo er, er ljóst að planið virkar ekki. Mér finnst ríkisstjórnin sé komin út í skurð í efnahagsmálunum. Þau hafa aukið verðbólguna frekar en að draga úr henni. Að boða 11 prósenta lækkun á virðisaukaskatti af bensíni og olíu kemur fáum til góða.“
Hér má taka undir með Guðrúnu formanni Sjálfstæðisflokksins. Á ársfundi Seðlabankans í gær sagði Kristrún forsætisráðherra:
„Þess vegna mun ríkisstjórnin á morgun (í dag) kynna tímabundnar aðgerðir í efnahagsmálum — sem taka á þeirri stöðu sem upp er komin, meðal annars vegna áhrifa af stríðsátökum úti í heimi. Það er óvissa og verður áfram óvissa. En stundum þarf að taka í bremsuna og skipta um gír — detta í nýjan takt. Til að hemja verðhækkanir.
Þannig munum við leggja okkar af mörkum og hvetja atvinnulífið um leið til að leggja okkur lið með afgerandi hætti við að hemja verðbólguna og koma henni í markmið. Þessar aðgerðir verða tímabundnar og koma ekki í staðinn fyrir umbætur sem taka lengri tíma — þvert á móti. En það þarf að taka fast á verðbólgunni bæði í bráð og lengd — ef vel á að takast.“
Nú á við: „Fjallið tók jóðsótt og fæddist lítil mús.“