- Advertisement -

Sér­ís­lensk hávaxtastefna

Engu að síður eru stýrivextir 88 prósentum hærri hér en í Bretlandi.

Sigurjón Þórðarson.

Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, skrifar:

Á opnum fundi í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis sagði seðlabankastjóri að væru menn ósáttur við lög og reglur varðandi verðbólgumarkmið Seðlabankans, þyrfti Alþingi að breyta lögunum.

Þetta kann að vera rétt. En áður en til þess kemur er rétt að vekja athygli á að í fjölda ríkja Evrópu er verðbólga á svipuðu róli og hér og jafnvel meiri, m.a. í Litháen, Lettland, Slóvakía og Bretlandi. Holland og Noregur eru síðan ekki langt undan.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Í engu þessara landa eru stýrivextir nærri þeim 7,5 prósentum sem vextirnir eru hér. Það er áhugavert að bera saman Ísland og Bretland þar sem verðbólga er svipuðu. Engu að síður eru stýrivextir 88 prósentum hærri hér en í Bretlandi.

Seðlabankinn virðist því beita öfgakenndari vaxtahækkunum en þekkist á öðru byggðu bóli í Evrópu ef frá eru talin stríðshrjáð ríki.

Vaxtaokrið hefur afleiðingar

Hér hafa minni fyrirtæki þurft að greiða ríflega tíu prósenta vexti svo árum skiptir. Þau hafa engin úrræði önnur en hleypa kostnaðinum út í verðlagið. Það ætti því ekki að koma neinum jarðtengdum fjármálasérfræðingi á óvart að vaxtastefnan nær ekki tilætluðum árangri.

Það blasir við að verðbólgan hér er að mestu drifin áfram af skorti á húsnæði og samkeppni. Hún verður varla kveðin niður með því að leggja stein í götu í byggingu húsnæðis með miklum vaxtakostnaði. Það er engu líkara en að peningastefnunefnd hafi misst allt jarðsamband.

…í veg fyrir frekari fjárfestingar.

Í dag er ferðaþjónustudagurinn. Ef allt væri með felldu stæði ferðaþjónustan, sem er útflutningsgrein, í miklum blóma. En þrátt fyrir mikinn fjölda ferðamanna um allt land, grefur vaxtastefnan augljóslega undan gróskumiklum rekstrinum og kemur sömuleiðis í veg fyrir frekari fjárfestingar.

Fjárfesting dagsins í dag markar lífskjör framtíðarinnar

Háir vextir hvetja ekki til þess að fjármagn leiti til framtíðarávöxtunar í innviðum, húsnæðisuppbyggingu né til uppbyggingar í atvinnurekstri sem skilar ávöxtun til framtíðar.

Óbreytt séríslensk vaxtastefna er komin í óefni.

Óbreytt séríslensk vaxtastefna er komin í óefni.

Sigurjón Þórðarson.

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: