- Advertisement -

Ríkisstjórnin of hrædd við skattahækkanir

Umræðan: Vilhjálmur Þorsteinsson skrifar á Facebook:

„Aðvörun: Beturvitrungs-status.

Vilhjálmur Þorsteinsson.

Það hefur verið þrálát verðbólga undanfarið, 5,4% í síðustu mælingu. Verðbólga er ávallt peningalegt fyrirbæri, sagði Milton Friedman, og ekki lýgur hann. Ergó: Það er of mikið af peningum í umferð. Það er ekki síst afleiðing af COVID-tímabilinu þegar stjórnvöld opnuðu flóðgáttir fjár inn í hagkerfið. Þær ráðstafanir voru skiljanlegar enda vildi ríkisstjórnin fremur gera of mikið til örvunar heldur en of lítið. En þegar land fór að rísa aftur eftir COVID voru tveir kostir í stöðunni til að draga fé aftur út úr hagkerfinu og kæla það: (1) Að hækka vexti, og (2) að hækka skatta. Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur virtist ekki telja valkost (2) færan – enda með Sjálfstæðisflokk innanborðs, og ekki nægt bein í nefinu VG-megin – þannig að leið (1) var farin.

Á meðan þarf aumingja Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri…

Það var afar vont val. Leið (1) leggur byrðina á skuldugt fólk, ungt fólk sem reynir að koma sér upp húsnæði, og almennt á þau eigna- og tekjuminni. Nota hefði mátt leið (2) til að draga féð aftur út úr hagkerfinu frá þeim sem áttu það, og höfðu komið út úr COVID-tímabilinu óskaddaðir eða í plús. Bara svo dæmi séu tekin, þá er alveg óþarfi að söluhagnaður fasteigna sé alfarið skattfrjáls, á tímabili þar sem fasteignaverð rýkur upp úr öllu valdi. Þá mætti vel hækka erfðafjárskatt, umfram rúm skattleysismörk.

Ríkisstjórnin sem nú situr virðist ætla að halda áfram með mistök fyrri ríkisstjórnar; hún er of hrædd við skattahækkanir þótt þeim yrði beint að breiðustu bökunum. Nú er talað um að ná jöfnuði með niðurskurði í ríkisrekstri, jafnvel flötum (sem gefur yfirleitt til kynna ráðþrot) – en skattahækkanir má ekki nefna. Á meðan þarf aumingja Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri að hækka vexti á unga fólkið og hlaða þar með áfram undir fjármagnseigendur, og virðist af látbragði hálf-engjast yfir því að vera settur í þessa ómögulegu stöðu.

Já, margt er á okkur lagt að reyna að stjórna þessu fína krónuhagkerfi.“

Fyrirsögnin er val Miðjunnar.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: