- Advertisement -

Segir fæst börn vita hvað þau lærðu í skólanum þann daginn

Umræðan/Facebook: Arnaldur Bárðarson skrifaði:

Ég er ekki í vafa að stjórnarseta Flokks fólksins muni skila meiru en Vg gerðu í ríkisstjórn aðgerðaleysisins. Þar sem aukið flækjustig stjórnsýslu virtist markmið í sjálfu sér ásamt aðgerðaleysinu.

Inga Snæland hefur látið verkin tala í sinni ráðherratíð. Nefna má breytingar á örorkulífeyriskerfinu, reglur um dýrahald í fjölbýli og nú afar gagnleg breyting í skipulagsmálum er snýr að ljósvist/skuggavarpi á íbúðir. Gróðaöflin fá þá ekki lengur að byggja „hella“ Þar sem aldrei sést sól.

Skólinn kemur ekki í stað heimilis…

Ég bind miklar vonir við komu Ragnars Þórs í félagsmálaráðuneytið. Vonandi nær hann að koma á endurbótum sem gagnist fólki til að eignast húsnæði á viðráðanlegu verði. Hár húsnæðiskostnaður er einhver mesta meinsemd íslensks samfélags og hefur áhrif á líf fjölskyldna meir en nokkuð annað. Skuldabasl fæðir af sér skilnaði og sambúðarerfiðleika, of mikla vinnu foreldra og fjarvistir frá heimili vegna vinnu sem síðan kemur niður á lífsgæðum barnanna.

Skólinn kemur ekki í stað heimilis og ætti ekki að vera dvalarstaður barna nema nokkra klukkutíma á dag. Geymsluhlutverk skólans þar sem börn eru frá 8-4 ber meiri einkenni fangelsis en menntunarúrræðis. Raunin er líka sú að fjölmörg börn fara í það hugarástand að reyna að loka á allt til að lifa af daginn. Ef þú trúir því ekki þá skaltu spyrja barn um hvað það það hafi lært í skólanum í dag. Flest vita ekkert um það.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: