„Nafnið tilheyrir fyrst og fremst þeim byggingum á staðnum sem eru friðaðar. Háskólinn sem var á Bifröst verður því að finna sér nýtt nafn. “
Hrafn Magnússon.
„Háskólinn sem staðsettur var á Bifröst í Norðurárdal í Borgarfirði er nú fluttur þaðan og kemur ekki aftur. Gallinn er sá að skólinn kallar sig ennþá „Háskólinn á Bifröst“ sem er mjög sérkennilegt þar sem aðsetur hans er á Hvanneyri og í Reykjavík. Skólinn verður auðvitað að skila Bifrastarnafninu því það er friðað og tilheyrir eldri byggingum á Bifröst sem eru friðaðar,“ skrifaði Hrafn Magnússon.
„Forsagan er þessi. Þegar Samband íslenskra samvinnufélaga byggði veitinga- og samkomustað í Norðurárdal var ákveðið að efna til samkeppni um nafnið. Þetta var árið 1951. Fjölmargar tillögur bárust og var sá kunni samvinnufrömuður Hallgrímur Sigtryggsson hlutskarpastur með tillögu sinni um nafnið BIFRÖST.
Nafnið tilheyrir fyrst og fremst þeim byggingum á staðnum sem eru friðaðar. Háskólinn sem var á Bifröst verður því að finna sér nýtt nafn.
Sem gamall nemandi og kennari á Bifröst legg ég því áherslu á að ekki er hægt að flytja Bifrastarnafnið eitthvað annað, hvort sem það er á Hvanneyri eða til Reykjavíkur. Ėg er viss um að gamlir nemendur og starfsfólk sem eiga góðar minningar frá Bifröst eru mér sammála.“