Breytingin virðist sett fram í taugaveiklun og show-stemningu til að draga athyglina frá öllu klúðrinu og kosningarsvikunum sem við erum að upplifa hjá núverandi ríkisstjórn.
Guðmundur Þ. Ragnarsson.
Guðmundur Þ. Ragnarsson skrifaði:
Það er gott og ánægjulegt að atvinnugreinin sem nýtir sjávarauðlindina gangi mjög vel. Hún á því að greiða eðlilegt og réttlátt gjald fyrir afnot af eigninni okkar sjávarauðlindinni. Ég tel hinsvegar aðferðafræðina ranga sem nota á til að hækka veiðigjöldin eins og nú er boðað.
Breytingin virðist sett fram í taugaveiklun og show stemningu til að draga athyglina frá öllu klúðrinu og kosningarsvikunum sem við erum að upplifa hjá núverandi ríkisstjórn. Á erfitt með að trúa því að ekki hefði verið hægt að vinna þetta faglegra.
…það er alþingi og stjórnvöld…
Að ráðherra komi fram og gefi í skyn í popúlismum tilgangi að allir sem reka og eiga útgerðir séu illa innrættir einstaklingar sem komist hafi upp með að arðræn þjóðina. Gleymum því ekki að það er alþingi og stjórnvöld sem hafa búið til lögin og reglurnar sem atvinnugreinin hefur unnið eftir.
Þar liggur ábyrgðin. Þar var núverandi formaður Viðreisnar við völd og tók þátt í að búa til reglurnar.
Ef við ætlum að hafa grunninn réttan við innheimtu auðlindagjaldanna, tryggja samkeppnisstöðu atvinnugreinarinnar og okkar hagsmuni sem eigendur auðlindarinnar.
Verðum við að miða við afurðarverðin sem við fáum fyrir unnar fiskafurðir og heimsmarkaðverð á þeim. Það er það eina rétta og um leið segir það okkur hvort eðlileg verðmætasköpun er að verða hér innannlands og um leið að við séum að fá okkar rétta arð af auðlindinni. Auðvitað á fiskur ekki fara úr landi nema úr honum hafi verið gerð eins verðmæt vara og hægt er.
Ef staða er orðinn þannig að stærri og stærri hluti af fiski er fluttur út óunnin vegna þess að ekki er hægt að vinna hann innanlands vegna hráefnisverðs og vinnslukostnaðar er það eitthvað sem verður að skoða mjög alvarlega.
Læt fylgja með fyrsta Kastljósþáttinn af þremum sem meðal annars voru gerðir eftir grein sem ég skrifaði um verðlagmálin þegar ég var í verkalýðsbaráttunni. Gaman að rifja þetta upp.
Guðmundur er fyrrverandi formaður VM, félags vélstjóra og málmtæknimanna.