- Advertisement -

Sigríður Á. Andersen og friðhelgin

Una Margrét Jónsdóttir skrifar pistilinn:

„Það má held ég fullyrða að í þessari reglugerð er kveðið á um aðgerðir svo áhrifamiklar og víðtækar og inngrip inní friðhelgi einkalífsins og persónuréttindi manna að annað eins hefur ekki þekkst, ekki bara í lýðveldissögunni heldur jafnvel í Íslandssögunni allri,“ sagði Sigríður Á Andersen á Alþingi 5. nóvember þegar rætt var um sóttvarnaraðgerðirnar sem gilda til 17. nóvember.

Ég verð að segja að ég verð alveg undrandi þegar ég sé öðru eins haldið fram. Mesta inngrip í friðhelgi einkalífsins og persónuréttindi manna í Íslandssögunni allri?

Í hverju felast sóttvarnarreglurnar? Gæta skal tveggja metra fjarlægðar, skyldugt er að vera með grímu í verslunum og skólum, og sumar stofnanir verða að hafa lokað hjá sér í nokkrar vikur.

Lítum aðeins á Íslandssöguna.

Á fyrstu öldum Íslandsbyggðar tíðkaðist þrælahald. Það er sem sagt minna inngrip í persónuréttindi manna, að mati Sigríðar.

Öldum saman var fólk tekið af lífi á Íslandi ef það var talið hafa rangar trúarskoðanir eða ef það hafði stundað kynlíf utan hjónabands. Það er minna inngrip í persónuréttindi manna, að mati Sigríðar.

Á 18. og 19. öld var í gildi vistarband sem skyldaði jarðnæðisnaust fólk til þess að ráða sig í vinnumennsku. Færi fátækt fólk gangandi af stað um landið var því refsað fyrir flakk. Það er minna inngrip í persónuréttindi manna, að mati Sigríðar.

Fátæku fólki var bannað að gifta sig, fátækar fjölskyldur voru leystar upp, fólk flutt hreppaflutningum í aðra landshluta og börn þess sett á bæi hjá ókunnugu fólki sem sveitarómagar. Það er minna inngrip í persónuréttindi manna, að mati Sigríðar.

Á tíma kalda stríðsins voru símtöl fólks hleruð af stjórnvöldum ef það taldist hafa óæskilegar stjórnmálaskoðanir. Það er minna inngrip í persónuréttindi manna, að mati Sigríðar.

Og svo skulum við líta aðeins á það sem gerist ef ef ekki eru settar sóttvarnarreglur heldur fólki í sjálfsvald sett hvort það fer varlega eða ekki.

Það sem þá gerist er það að fólk deyr.

Er það minna inngrip í persónuréttindi manna, að mati Sigríðar?


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: