- Advertisement -

Sjálfsblekking og meðvirkni veikja okkur

Fyrr eða síðar kemur að því að alvarlegt fólk þarf að hreinsa upp afleiðingar sem þykjustuleikararnir skilja eftir sig.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Umræðan/Facebook: Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrum utanríkisráðherra, skrifaði:

„Hótanir Bandaríkjastjórnar um að hirða landsvæði af traustum bandalagsríkjum eru raunverulegar. Þegar fólk talar og hegðar sér meira eins og að það sé að taka þátt í raunveruleikasjónvarpi en raunveruleikanum er freistandi fyrir okkur hin að horfa og afgreiða það sem óraunverulegt.

Fjölmiðlar og þjóðarleiðtogar hafa, enn sem komið er, flestir tekið þá afstöðu að vera með í þessu raunveruleikasjónvarpi.

Ég tel að þetta leikrit sé að valda okkur raunverulegu tjóni. Sjálfsblekking og meðvirkni veikja okkur, bæði hvert fyrir sig – og okkur sem samfélög.

Heimurinn er raunverulegur. Óstjórn, græðgi og firring hafa afleiðingar. Fyrr eða síðar leiðir raunveruleikasjónvarpið til raunverulegra afleiðinga. Þykjustuleikurinn verður að veruleika. Þegar þar að kemur mun almenningur bera tjónið og þjáningarnar.

Fyrr eða síðar kemur að því að alvarlegt fólk þarf að hreinsa upp afleiðingar sem þykjustuleikararnir skilja eftir sig.

Þótt við reynum að vera kurteis og yfirveguð, ábyrg og horfa til lengri tíma, þá skulum við ekki láta eins og við sjáum ekki hvað er að gerast – raunverulega.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: