- Advertisement -

Sjálfstæðisflokkurinn á í miklum og vaxandi vanda – hvað gerir Guðrún?

Sigurjón Magnús Egilsson:

Guðrún Hafsteinsdóttir formaður yrði þriðji þingmaður Suðurlandskjördæmis skv. nýjustu könnunum. Það er sterkt merki um framgöngu Guðrúnar. Hvað á hún að gera og hvað má hún ekki gera?

Stjórnmál: Sjálfstæðisflokkurinn á í verulegum og miklum vanda. Fylgið nánast hrinur af flokknum, mánuð eftir mánuð. Miðflokkurinn hefur tekið framúr honum og er að festa sig í sessi sem annar stærsti flokkurinn. Þetta er alvarleg og hættuleg staða fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Annað er ómögulegt en að flokksfélagar hafi miklar áhyggjur.

En hvað getur flokkurinn gert? Því er vandsvarað. Má setja ákveðna þingmenn flokksins í bann frá umræðum í þinginu? Mögulega. Í norðausturkjördæmi mælist flokkurinn t.d. aðeins með tíu prósenta fylgi. Tíu prósent. Þar eru þingmenn Sjálfstæðisflokksins varaformaðurinn Jens Garðar Helgason sem er nýliði á þingi og Njáll Trausti Friðbertsson, sem hefur lengi setið á Alþingi.

Guðrún Hafsteinsdóttir formaður yrði þriðji þingmaður Suðurlandskjördæmis skv. nýjustu könnunum. Það er sterkt merki um framgöngu Guðrúnar. Hvað á hún að gera og hvað má hún ekki gera?

Guðrún fór illilega út af sporinu þegar hún tók þátt í vitleysisatriði með Fannari Sveinssyni, sem var sýnt í sjónvarpi. Þau hlupu saman um sali Kjöríss í Hveragerði. Meðal annars fyllti Fannar munn Guðrúnar af ís og annað var eftir því. Alveg ófyndið. Reyndar raunarlegt.

Guðrún á frekar að vera málefnaleg og vanda hvenær hún tekur til máls, á þingi og utan þess. Verður að fá annað fólk úr þingflokknum til að láta eins og bjánar. Eða öllu heldur, sleppa því.

Vandinn virðist óyfirstíganlegur. Sjálfstæðisflokkurinn nær mest og best til eldra fólks. Ef á að reyna að höfða til yngri kjósenda verður að vanda framkomuna. Guðrún verður að vera málefnaleg og undir liðnum „Störf þingsins“ verður hún að tala af festu. Og í „óundirbúnum fyrirspurnum“ á hún einungis að spyrja flokksformenn ríkisstjórnarinnar. Og kannski fjármálaráðherra. Það er vandasamt að vera leiðtogi.

Varaformaðurinn er nýliði á þingi og hagar sér sem slíkur. Sjálfstæðisflokkurinn á í miklum vanda. Fyrir okkur sem fylgjumst með stjórnmálum er spennandi að sjá hvað Guðrún hyggst gera. Annað en reka hvern framkvæmdastjórann af öðrum. Nú er þriðji framkvæmdastjórinn hjá flokknum á þeim skamma tíma sem Guðrún hefur verið formaður.

Það er eitthvað mikið að. Hvað gerir Guðrún?


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: