- Advertisement -

Sjálfstæðisflokkur er stjórnmálaarmur SFS

Marinó G. Njálsson:

Sjálfstæðisflokkurinn sannaði fyrir þjóðinni, að hann er stjórnmálaarmur Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.

Afleiðingin var eins og nánast alltaf þegar Framsókn hefur verið varadekk undir vagni Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn að fylgið hrundi.

Varnir stjórnarandstöðu hafa verið margar og skringlilegar eftir að forseti Alþingis lagði til að frumvarp um veiðigjöld færi í atkvæðagreiðslu eftir 2. umræðu til að vísa því aftur til þingnefndar. Talað er um valdníðslu og Kristrún hafi misst tökin, en alveg litið framhjá því, að það voru þingmenn stjórnarandstöðunnar sem í raun misstu tökin með endalausum innihaldslausum ræðuhöldum. Þeir sýndu Alþingi og þjóðinni óvirðingu með því að líta á umræðuna sem skemmtun fyrir sig.

Sjálfstæðisflokkurinn sannaði fyrir þjóðinni, að hann er stjórnmálaarmur Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. (Mætti vitna hér í þjóðskáldið: „Nú er hún Snorrabúð stekkur“.)

Að hann tekur við skipunum frá forsvarsmönnum SFS, sem gengu svo langt að hrekja nýkjörinn formann sinn úr embætti, vegna þess að hann vildi fara leið sátta. Formaður flokksins staðfesti, það sem fyrrum varaformaður flokksins sagði fyrir margt löngu, að það er ekki hlutverk formanns Sjálfstæðisflokksins í stjórnarandstöðu að gæta að hagsmunum almennings. Munum svo, að síðasti forsætisráðherra boðaði til þingkosninga vegna þess að hann væri að gæta hagsmuna Sjálfstæðisflokksins. Hann var EKKI að hugsa um hagsmuni þjóðarinnar.

Þú gætir haft áhuga á þessum
Svo kemur formaður Framsóknar, sem almennt hefur notið virðingar landsmanna fyrir yfirvegun, og áttar sig ekki á afleik stjórnarandstöðunnar.

Svo kemur formaður Framsóknar, sem almennt hefur notið virðingar landsmanna fyrir yfirvegun, og áttar sig ekki á afleik stjórnarandstöðunnar. Maðurinn sem bakkaði Sjálfstæðisflokkinn uppi í síðustu ríkisstjórn, vegna þess að hann vildi halda friðinn, en viðurkenndi svo þegar ríkisstjórnin var sprunginn að það hafi verið erfitt að vinna með Sjálfstæðisflokknum vegna þeirrar sundrungar sem var innan flokksins. Afleiðingin var eins og nánast alltaf þegar Framsókn hefur verið varadekk undir vagni Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn að fylgið hrundi. Skoðanakannanir benda til þess að það haldi áfram að lækka og samt lætur formaðurinn eins og Framsókn sé hækja Sjálfstæðisflokksins.

Maðurinn sem sjaldan sést í þingsal og ekki er vitað hvort hann sé yfirhöfuð í húsakynnum Alþingis, sagði í umræðu um atkvæðagreiðsluna:

„Hvers vegna þetta mikla leikrit? Hvers vegna þessi aðferð sem hér er beitt? Hver er tilgangurinn? Varla er það bara til að afgreiða skattamál í júlí sem tekur gildi næsta vetur.“

Í staðinn fyrir að spyrja þessara spurninga, þá hefði hann allt eins getað svarað þeim. Hvers vegna þetta 160 klst. leikrit? Hvers vegna þessi aðferð sem hér er beitt að tala í 160 klst. út af skattamáli? Líklega vegna þess að það komu fyrirmæli frá SFS að þetta mál mætti ekki fara í gegn. ENGIN önnur ástæða liggur að baki.

Málið er að 95% þjóðarinnar sér þetta. Allir þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna vita þetta og því væri bara gott að hætta þessu leikriti. Jón Viðir myndi segja það hafi verið heldur klént!

Greinina birti Marinó á Facebokksíðu sinni. Hún er birt hér með góðfúslegu leyfi höfundar.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: