

Facebook: „Þetta mál er auðvitað enn ein staðfesting á því að hagsmunum Íslands er best borgið með fullri aðild að ESB og – þrátt fyrir ágæti sitt – takmarkanir EES samningsins. Málatilbúnaður formanns Sjálfstæðisflokkins og málpípu Miðflokksins er aumkunarverður,“ skrifaði Úlfar Hauksson.
„Auðvitað stendur ESB fyrst og fremst með hagsmunum aðildarríkja sambandsins. Það ætti nú ekki að koma neinum á óvart. Þrátt fyrir allt er EES samningurinn lang mikilvægasti viðskiptasamningur Íslands og Noregs en er – eðli málsins samkvæmt – háður takmörkunum sem koma í ljós við svona aðstæður í alþjóðaviðskiptaumhverfinu. Viðbrögð Sjálfstæðismanna við þessum tíðindum staðfesta enn og aftur að flokkurinn er í hafvillum. Hrakinn og týndur og fastur í innihalds- og ábyrgðarlausri frasapólitík. Um Miðflokkinn þarf ekki að fara mörgum orðum… ekkert nema ómerkilegar umbúðir án innihalds,“ skrifaði Úlfar.