- Advertisement -

Skætingur og útúrsnúningur Þorgerðar

„Því er það miður að hæstvirtur utanríkisráðherra hafi varið tíma sínum svo illa á fundinum…“

Diljá Mist Einarsdóttir Sjálfstsæðisflokki.

Alþingi: Diljá Mist Einarsdóttir er ósátt við framgöngu Þorgerðar Katrínar utanríkisráðherra á opnum fundi utanríkismálanefndar:

Diljá Mist Einarsdóttir

„Samkvæmt þingskapalögum getur nefnd haldið opinn fund í því skyni að afla upplýsinga. Þannig er hægt að boða m.a. hæstvirta ráðherra á opinn fund nefnda til að sitja þar fyrir svörum. Af starfsreglum fastanefnda er ljóst að gestum þar ber að svara spurningum nefndarmanna. Opinn fundur háttvirtrar utanríkismálanefndar með hæstvirtum utanríkisráðherra í morgun (í gær) var því mikil vonbrigði. Fundurinn var haldinn í því skyni að afla betri upplýsinga fyrir þingmenn og fyrir þjóðina fyrir boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég hafði undirbúið mig vel og bar fram fjórar spurningar til ráðherra. Fyrirspurnirnar eru tímasettar þar sem tíminn er naumur og allir nefndarmenn þurfa að komast að. Í stað þess að svara spurningum mínum uppskar ég langan fyrirlestur frá hæstvirtum ráðherra um framkomu stjórnarandstöðunnar á síðasta þingvetri. Mér telst svo til að ég hafi fengið eitt og hálft svar og það þrátt fyrir ítrekanir á spurningunum sem út af stóðu. Upptakan er aðgengileg á vef Alþingis og ég hvet alla til að kynna sér hana.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Það er gríðarlega mikilvægt að við fáum sem mestar og bestar upplýsingar fyrir fyrirhugaða atkvæðagreiðslu. Því er það miður að hæstvirtur utanríkisráðherra hafi varið tíma sínum svo illa á fundinum, bæði gagnvart mér, sem hafði undirbúið fundinn vel, en fyrst og fremst gagnvart almenningi sem kallar eftir betri upplýsingum og svörum, ekki eftir skætingi og útúrsnúningi.

Eftir fundinn greip ég því til þess ráðs að óska eftir öðrum opnum fundi með hæstvirtum ráðherra. Tilgangur þessara funda er enda að fá svör við spurningum.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: