Umræðan/Facebook: Guðjón Friðriksson sagnfræðingur skrifaði:
„Við lifum því miður á dögum endurvakinnar heimsvalda- og nýlendustefnu. Trump Bandaríkjaforseti hefur engan áhuga fullveldi þjóða eða mannréttindum. Nú gerir hann árásir á Nigeríu og Venezuela undir einhverju yfirskini en það er ekki tilviljun að þessi tvö ríki eru gamalgróin olíuframleiðsluríki. Það er olían sem Trump ásælist, annað er yfirvarp. Svo er það vinur hans Pútin hinum megin sem er að reyna að ná undir sig Úkraínu. Næst verða það svo örugglega önnur nágrannaríki sem hann telur réttmætt að leggja undir sig í þágu heimsvaldasýki sinnar. Ég tel það mikilvægt að við Íslendingar sem smáþjóð stöndum sem fastast vörð um alþjóðalög sem eiga að tryggja fullveldi þjóða. Og stöndum fast með öðrum þjóðum gegn yfirgangi þessara þrjóta.“
Fyrirsgönin er Miðjunnar.