- Advertisement -

Það kostar tæplega 85 milljarða að skella 280 þúsund í vasa allra sem greiða tekjuskatt á ári

Þið fyrirgefið Facebook-útreikningana ég er ekki með þessi gögn á hreinu og hef ekki tíma til að vinna vinnu sem aðrir eiga að vinna áður en þeir birta fréttir í nafni ríkisútvarpsins.

Efnahagsmál: Atli Þór Fanndal rótar upp skattahugmyndum Sjálfstæðisflokksins:

Hérna… dettur engri fréttastofu í hug að krefjast forsenda þegar þeir birta hrátt fréttatilkynningar um stórkostlegar skattalækkanir. Sjálfstæðisflokkurinn er að lofa 280 þúsund króna ábáta fyrir einstakling á ári vegna hækkun skattafsláttar. Það kostar auðvitað peninga en þeir eru líka að lofa 11% lækkun skattþreps efstu tekjutíundarinnar. Svo er 2% lækkun fjármagnstekjuskatts, 5% á krónutölugjöldum. Einfaldur servíettuútreikningur sýnir bara að þetta stemmir ekki neitt. Hvernig dettur fréttamönnum í hug að birta þetta gagnrýnislaust? Er það núna orðið pólitískt viðkvæmt að krefja menn um einhverjar upplýsingar um hvernig þeir reikna hluti. Það kostar tæplega 85 milljarða að skella 280 þúsund í vasa allra sem greiða tekjuskatt á ári. Það er ekkert ókeypis að lækka tekjuskatt ríkasta fólksins um 11%. Þessi hópur tekur rét rúmlega fjórðung launatekna til sín og greiðir í dag hærra hlutfall en aðrir af þeim tekjum í skatt – enda að taka margfallt meira en aðrir. Efstu tíu prósentin taka meira en lægstu fimm tekjutíundin. Það kostar enga 140 milljarða að gera allt sem þessi rugludallaflokkur er að boða. Það er miklu dýrara.

Þetta er bara vítavert gáleysi af hálfu RÚV. Morgunblaðið er gremjublogg þannig að ég nenni ekki að láta eins og þar séu menn að leitast eftir staðreyndum.

280 þúsund á hvern þeirra á ári kostar um 61 milljarð.

En það er nákvæmlega svona sem menn verða þátttakendur í upplýsingaóreiðu. Með því að láta eins og meira að segja stærðfræði sé skoðun.

En bara svona í framhjáhlaupi… Einu sinni boðaði Flokkur fólksins skattleysismörk fyrir laun upp á 300 þúsund. Það var reyndar mjög stórkarlalegt líka svo ekki sé meira sagt. Það var alveg tætt sundur og saman. En ok skoðum forsendurnar sem þó koma fram. Guðrún segir þetta bæta hag einstaklinga um 280 þúsund á ári.

Þið fyrirgefið Facebook-útreikningana ég er ekki með þessi gögn á hreinu og hef ekki tíma til að vinna vinnu sem aðrir eiga að vinna áður en þeir birta fréttir í nafni ríkisútvarpsins.

Ef skattleysismörk eru hækkuð í 100 þús á mánuði en skattprósentan heldur sér og þrepaskipting er látin standa þá fá þeir sem eru í fullu starfi sirka 330 þúsund á ári. Hins vegar hefur flokkurinn ákveðið að taka 50 þúsund af þeim með því að keyra upp skattprósentuna á móti fyrir þá sem hafa það lágar tekjur.

Á Íslandi eru sirka 216 þúsund starfandi: 280 þúsund á hvern þeirra á ári kostar um 61 milljarð.

Það eru tæplega 60 þúsund ellilífeyrisþegar á Íslandi sem greiða tekjuskatt. Að gefa þeim 330 þúsund kostar tæplega 20 milljarða en tæplega 17 að gefa 280000.

56 milljarðar fara hvert?

22 þúsund öryrkjar og fólk á endurhæfingalífeyri sem ég geri hér ráð fyrir hér að geti bara nýtt sér þessi skattleysismörk til fulls en eins og í öðru eru einhver jaðardæmi. Það myndi kosta rúmlega 6 milljarða ef um 280 er að ræða.

Nú getur auðvitað verið að ágóðinn sé ekkert 280 þúsund á einstakling en þá er nú frekar slappt að segja bara Guðrún segir það vera ágóðann.

Þannig að samkvæmt þessu er Valhöll að leggja til 84 milljarða kostnað í að hækka skattleysisþrepin? 56 milljarðar fara hvert?

Þið afsakið servíettuútreikningana en útreikningar Valhallar standast enga skoðun. Það er bara hægt að birta þá með því að skoða ekkert. Flokkurinn er ekkert að boða einhverja 140 milljarða lækkun heldur stórkostlega tilfærslu á auð. Það er ekki ókeypis að lækka skattaprósentu hálaunafólks um 11%, lækka gjöld, lækka fjármagnstekjuskatt og svo framvegis og framvegis. Þess utan myndi þetta keyra upp verðbólgu.

Til hvers að vera með fréttastofu ef það er bara hægt að senda upptökutæki með Wolt. Ég ætla ekki að þykjast skilja þetta en það er vegna þess að engar forsendur eru birtar. Þetta er bara copy paste. Það er ekki fréttamennska.



Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: