- Advertisement -

Þar sem fimmta hvert barn býr við sárafátækt

„Það er full ástæða til að Alþingi taki fyrir mál leigjenda á Íslandi af fullri alvöru og þunga.“

Viðar Eggertsson.

„Samtök leigjenda birtu á dögunum kolsvarta skýrslu um stöðuna á leigumarkaði og er vægast sagt dregin þar upp allnöturlegri mynd en við fáum yfirleitt að heyra. Þar kemur skýrt fram að það er alvarleg húsnæðiskreppa á Íslandi og kjör leigjenda eru hrikaleg, sem bitnar skelfilega á veikum hópum, þeim sem eru á lægstu laununum; fjölskyldufólki, örorkulífeyristökum og ellilífeyristökum,“ sagði Viðar Eggertsson, á Alþingi, fyrir skömmu.

„Ástandið fer hríðversnandi því þessir hópar eru í raun fastir í óðaverðbólgu sem hækkar leigu á íbúðarhúsnæði í hverjum einasta mánuði. Fimmta hvert barn í leiguhúsnæði býr við sárafátækt. Það er nánast ómögulegt að fólk komist af leigumarkaði eftir því sem það verður eldra. Því fer þeim sífjölgandi sem eru í þeirri stöðu en einungis innan við einn af hverjum tíu leigjendum vill vera á leigumarkaði, skiljanlega. Æ meiri skortur á leiguhúsnæði neyðir fólk til að taka sér bólfestu í óleyfilegu húsnæði og skorturinn skrúfar upp leiguverðið í hverjum einasta mánuði því leigjendum gefst ekki annað en að beygja sig undir óásættanlega samninga sem eru í raun einhliða ákvörðun leigusalans, því lög um vísitölutengingu á húsaleigu voru afnumin árið 1999, því það eru fyrirtæki sem gera út á húsnæðismarkaðinn og hafa bara rakað að sér æ stærri hluta hans og bjóða leigjendum afarkosti á að eiga sér heimili; grunnþörf hvers manns,“ sagði Viðar og svo þetta:

„Tveir þriðju allra íbúða frá árinu 2005 hafa verið keyptir af fjárfestum í þeim eina tilgangi að hagnast á þeim. Það er full ástæða til að Alþingi taki fyrir mál leigjenda á Íslandi af fullri alvöru og þunga.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: