- Advertisement -

Þar sem stöðumælaverðir eru einir eftir

Miðborg Reykjavíkur er í tilvistarkreppu. Sem og svo margt annað. Eftir að hafa ekið upp og niður Laugaveginn eru stöðumælaverðir nánast eina fólkið sem sést þar. Þeir fara um með sektarmiðablokkirnar sínar.

Þeir ganga á milli þeirra örfáu bíla sem hefur verið lagt í miðborginni. Tilbúnir að sekta ef einhver fer yfir á tíma. Erfitt er að skilja hvers vegna er ekki hætt að rukka fyrir bílastæðin meðan samkomubann er í gildi.

Annað er svo hvað verður svo? Ferðafólki mun stórfækka. Á samt að loka Laugavegi og nágrenni? Hvað á að taka við? Veit það einhver? Eða skiptir það kannski ekki máli?

Þú gætir haft áhuga á þessum

Núverandi ástand er vonandi algjör undantekning. Miðborgin er ekki í stuði. Ekki bara vegna kórónuveirunnar. Gangi áform borgarinnar eftir er hætt á að Laugavegurinn verði draugagata, ekki verslunargata.

Stöðumælaverðirnir mega eiga það að þeir eru samviskusamir og sinna starfi sínu af einurð.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: