- Advertisement -

Þeir fuglar eru verstir sem skíta í eigin hreiður

Þetta er nokkurn vegin eins slæm blaðamennska og hugsast getur.

Kári Stefánsson.

Umræðan: Kári Stefánsson skrifaði eftirfarandi:

„Síðustu tvo daga hefur eftirfarandi fyrirsögn verið á mbl.is:

Kári Stefánsson í Epstein skjölunum það er engin spurning að með fyrirsögninni er Morgunblaðið að gefa í skyn að ég hafi verið í einhvers konar samskiptum við hinn látna barnaníðing. Það er hins vegar ljóst við lestur fréttarinnar undir fyrirsögninni að blaðið vissi betur. Þar af leiðandi var blaðið vísvitandi að afvegaleiða lesendur sína. Þetta er nokkurn vegin eins slæm blaðamennska og hugsast getur.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Í gær hafði ég samband við málsmetandi mann úr ristjórn Morgunblaðsins og bað hann að taka þessa fyrirsögn niður og fékk þau svör að það væri ekki í samræmi við vinnbrögð blaðsins að fjarlægja aðdróttun sem þeir vita að sé algjörlega út í hött. Ég vil leggja á það áherslu að með þessari framkomu er Morgunblaðið ekki að vega að mér vegna þess að þeir sem það vilja sjá glöggt að fyrirsögnin er út í hött.

Það er hins vegar afleitt þegar lesendur sjá að blaðið hikar ekki við að afvegaleiða þá til þess að ná athygli og með því stríðala athugasemdakerfi sitt. Eða eins og segir í gamalli íslenkri hasarbók: Þeir fuglar eru vestir sem skíta í eigið hreiður.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: