
Þórólfur Matthíasson hagfræðiprófessor sendi Heimildinni fína grein þar sem hann leiðréttir hagfræðingin Konráð Guðjónsson. Konráð hafi reiknað að matvara væri 40 prósent ódýrari á Íslandi en í löndum innan Evrópusambandsins. Hér fer aðeins hluti greinarinnar. Lesendum er bent á að lesa greinina alla. Hér er hún.
„Þann 13. júní síðastliðinn birti Morgunblaðið frétt með fyrirsögninni „Matarkarfan er 40% ódýrari á Íslandi“. Í aðaltexta fréttarinnar kemur fram að verið er að bera saman verðlag á Íslandi og meðalverðlag á matvælum í Evrópusambandinu. Í fréttinni eru bornar brigður á fullyrðingu í „svokölluðu“ (svo) umræðuskjali Samkeppniseftirlitsins (SKE). Í umræðuskjalinu kemur fram að verðlag á matvöru hér á landi sé 55% hærra en verð sambærilegrar matarkörfu er að meðaltali í Evrópusambandslöndunum, ólíkt því sem haldið er fram í tilvitnaðri Morgunblaðsfrétt. Morgunblaðið vitnar til útreikninga og samtals við Konráð Guðjónsson, ráðgjafa hjá Kontext (og fyrrum efnahagsráðgjafa ríkisstjórnar Bjarna Benediktssonar) máli sínu til stuðnings.
Í framhaldi af frétt Morgunblaðsins 13/6 hafði blaðamaður Heimildarinnar samband við tvo hagfræðinga og formann Neytendasamtakanna og spurði hvort upplýsingar SKE væru rangar og hvort matarkarfan væri í raun ódýrari á Íslandi en í Evrópu. Ekki könnuðust þeir við að tölur Morgunblaðsins og Konráðs væru lýsing á raunveruleika sem þeir þekktu. Konráð svaraði fullum hálsi og sendi viðmælendum Heimildarinnar tóninn á samfélagsmiðlum og uppskar annan stóran uppslátt í Morgunblaðinu.“