Þessi frétt er fengin af vefnum ff7.is:
„Árshækkun samræmdrar vísitölu neysluverðs nam 3,3 prósentum á EES-svæðinu í maí en fór niður í 2,9 prósent í júní. Hér á landi hækkaði vísitalan aftur á móti milli þessara tveggja mánaða líkt og fram kemur í frétt á vef Hagstofu Íslands.
Eins og gefur að skilja stýrir verðlagsþróun í 27 aðildarríkjum ESB því hvernig EES-svæðið kemur út því Ísland, Noregur og Lichtenstein vega ekki þungt í því samhengi.
Verðbólga í þeim ESB-löndum sem eru með evru er hins vegar lægri eins og sjá má hér fyrir neðan. Í maí mældist verðbólga á evrusvæðinu 3,1 prósent en fór niður í 2,7 prósent í júní.
Þar með breikkaði bilið á ný á milli verðlagsþróunar hér á landi og á evrusvæðinu á ný en í dag notar 21 aðildarríki ESB evru sem mynt.“
