- Advertisement -

„…til að slátra íslenskum eggjabændum“

Það er bara heilmikið í þessu sem væri hægt að græða á en um leið þurfum við auðvitað að vernda okkar landbúnað.

Ása Berglind Hjálmarsdóttir.

Alþingi: Hér er gripið niður í orðaskipti Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur Samfylkingu og Ólafs Adolfssonar sjálfstæðisflokki. Þau voru að ræða kosti og galla þess að Ísland gengi í Evrópusambandið:

Ég vil byrja á að þakka háttvirtum þingmanni Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur fyrir einlæga ræðu. Hún fór hér nokkuð víða. Hún nefndi m.a. í ræðu sinni bændur og húsnæði.

Mig langar til að forvitnast aðeins og horfa t.d. á bændastéttina. Það birtist í morgun, ef ég man rétt, ágætisgrein frá Ernu Bjarnadóttur sem hefur aðeins fjallað um landbúnaðarmál og ESB, og var held ég líka á Bylgjunni, og hún varpaði upp þeirri stöðu að miðað við hvernig smásölu háttar á Íslandi gæti einn erlendur aðili ákveðið að koma hér inn, t.d. í eggjaframleiðslu, og vera hér með lægstu verðin yfir einhvern ákveðinn tíma sem þyrfti til þess að slátra íslenskum eggjabændum. Við erum svo lítil í stóra samhenginu. Ég spyr því háttvirtan þingmann: Hefur hann engar áhyggjur af því að í smæð okkar felist ákveðin vandamál tengt því, t.d. eins og hér var nefnt með stóra framleiðendur?

Þú gætir haft áhuga á þessum

Jú, þetta er einmitt á meðal áhyggna sem ég hef um þetta mál. Það þarf að vera alveg skýrt að ef við förum af stað í samningaviðræður og klárum þær þá þarf þetta að vera eitt af þeim markmiðum sem við göngum út frá. Það kemur einmitt fram í þingsályktunartillögunni að áfram verði hér öflugur íslenskur landbúnaður. Auðvitað felur það í sér að við þurfum á einhvern hátt að verja hann fyrir svona aðstæðum. Í mínum samtölum við bændur kemur mjög glögglega fram að þeir hafa verið fjársveltir um langa hríð, sérstaklega þegar kemur að styrkjaumhverfi nýrra bænda sem vantar fjárfestingarstuðning til að koma sér af stað. Kannski er eitthvað slíkt að finna í Evrópusambandinu, ég veit það ekki. Enginn annar hér veit það heldur. Við þurfum að leiða þetta fram. Það er bara heilmikið í þessu sem væri hægt að græða á en um leið þurfum við auðvitað að vernda okkar landbúnað. Það er mjög mikilvægt að við höfum innlenda matvælaframleiðslu, bæði vegna þess að við viljum halda byggð um allt land í sveitunum okkar og líka vegna matvælaöryggis.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: