- Advertisement -

Tilmæli til andstæðinga þjóðarmorðs

Gæti sagan endurekið sig ef Íslendingar fyrstir þjóða rjúfa skarð í aðgerðaleysi heimsins og slíta stjónmálasambandi við glæpastjórnina í Ísrael?

Birgir Dýrfjörð.

Birgir Dýrfjörð skrifar:

Stóri útifundurinn á Austurvelli 6. sept. og sambærilegir fundir vítt um landið sýndu almenna andúð á voðaverkum og þjóðarmorði glæpastjórnarinnar í Ísrael.

Flest fólk sem ég hef rætt við er sammála um að slíta eigi stjórnmálasambandi við Ísraelsríki. 

Þú gætir haft áhuga á þessum

Því til stuðnings er vitnað í eftirfarandi orð Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur.

  • „Við eigum einfaldlega að gera það sem er rétt.“
  • „Við eigum ekki að bíða eftir því hvað aðrir gera.“

Þarna var örugglega talað fyrir munn tuga þúsunda í öllum byggðum landsins.

Þó smáríki á hjara veraldar slíti stjórnmálasambandi við glæpastjórnina í Ísrael, þá hefur það lítil áhrif á morðingjana sem öllu stjórna þar.

Ákvörðun Íslendinga gæti þó orðið fyrirmynd annarra þjóða eins og var  þegar Íslendingar einir þjóða svöruðu neyðarkalli og viðurkenndu sjálfstæði Litháen.

Íslendingar tóku þá forustu og rufu skarð í Sovétmúrinn. Önnur ríki í Sovétblokkinni nýttu sér það skarð og lýstu yfir sjálfstæði sínu. Þá sannaðist að oft getur lítil þúfa velt þungu hlassi.

Gæti sagan endurekið sig ef Íslendingar fyrstir þjóða rjúfa skarð í aðgerðaleysi heimsins og slíta stjónmálasambandi við glæpastjórnina í Ísrael?

Aðvaranir    

Lærðir menn og velviljaðir hafa upplýst almenning um líklegan efnahagslegan skaða og andúð öflugra þjóða ef við slítum stjórnmálasambandi við Ísrael. Það ber að þakka þær aðvaranir.

Þær aðvaranir segja okkur að það getur kostað að vera manneskja.

Þær boða okkur próf um þrælslund og undirlægjuhátt eða mannúð og hugrekki Íslendinga.

Ég hef því kynnt eftirfarandi rökstudda tillögu og hvet flokkssystkin mín og annað fólk og samtök, að samþykkja hana og senda til ríkisstjórnarinnar.

Tillaga um slit á stjórnmálasambandi.

(-Samfylkingarfélagið – . . . . .) hvetur ríkisstjórn Íslands að slíta stjórnmálasambandi við Ísraelsríki svo hratt sem má.

Rökstuðningur fyrir tillögu þessari er: Þjóðarmorð Ísraelsríkis á Palestínsku þjóðinni.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: