- Advertisement -

Trump er stórhættulegur heiminum öllum

Umræðan/Facebook: Halldór Guðmundsson skrifaði:

„Þeir sem trúa því að Trump hafi rænt Manduro (þeim auma einræðisherra) vegna þess að hann stundaði kókaínsmygl, gætu velt fyrir sér af hverju sami Trump er nýbúinn að náða fyrrum forseta Honduras, Juan Orlando Hernandez, sem hafði verið dæmdur í 45 ára fangelsi í Bandaríkjunum fyrir að smygla þangað 400 tonnum af kókaíni. Bandarískur forseti sem hefur að engu eigin stjórnarskrá og alþjóðalög er stórhættulegur heiminum öllum. Íslendingar eiga einskis annars úrkosta en að styrkja tengslin við Evrópu.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: