- Advertisement -

Utanríkisráðherra hefur ákveðið að ganga skrefi lengra og leggja milljarð til vopnakaupa

Við erum ekki stórveldi og tilraunir utanríkisráðherra og hennar líka til að láta sem svo sé eru í besta falli aumkvunarverðar. En um leið þjóðfjandsamlegar.

Jón Magnússon.

Uumræðan/Facebook: Jón Magnússon skrifaði:

Það er skelfilegt að Ísland skuli hafa vikið frá þeirri grundvallarstefnu sinni í utanríkismálum sem mótuð var þegar við urðum fullvalda þjóð fyrir rúmri öld, að Íslendingar væru vopnlaus þjóð, sem tæki ekki þátt í styrjaldarátökum. Þessi sérstaða var viðurkennd þegar við gengum í NATO.

Pilsin þrjú, Þorgerður, Kristrún og Þórdís, sem minna á þau þrjú sem börðust við Friðrik mikla Prússakonung, hafa markvisst ákveðið að breyta þessari utanríkisstefnu. Sendiráði Íslands í Moskvu var lokað og tekið fyrir vinsamleg viðskiptasamskipti þjóðanna, sem kom stríði eða friði við Úkraínu ekkert við.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Nú hefur utanríkisráðherra ákveðið að ganga skrefi lengra og leggja milljarð til vopnakaupa. Sú ákvörðun í skálaglamri lokahófs fundar utanríkisráðherra NATO lýsir vilja til ákveðinnar forgangsröðunar ríkisfjármála vegna þess að sama krónan verður ekki notuð tvisvar.

Á sama tíma og heilbrigðisráðherra lýsir óviðunandi ástandi á stærstu heilbrigðisstofnun landsins eru ekki til fjármunir til að gera það ástand viðunandi.

Það er löngu kominn tími til að stjórnmálamenn Íslands átti sig á því að það er andstætt hagsmunum Íslands að víkja frá gömlu utanríkisstefnunni og það er andstætt hagsmunum Íslands að úða út tugum milljarða árlega í þágu sértrúarsafnaðarins í loftslagsmálum.

Við erum ekki stórveldi og tilraunir utanríkisráðherra og hennar líka til að láta sem svo sé eru í besta falli aumkvunarverðar. En um leið þjóðfjandsamlegar.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: