- Advertisement -

Varúð: Þjófar ganga lausir

„Töluvert hefur verið um þjófnaði á höfuðborgarsvæðinu undanfarið og full ástæða er til að minna fólk á að vera á varðbergi. M.a. er um að ræða þjófnaði á reiðhjólum, rafmagnshlaupahjólum og vespum, auk þess sem nokkuð hefur verið um innbrot í bæði bíla og á byggingarsvæði,“ segir á Facebooksíðu lögreglunnar.

„Fólk er því hvatt til að geyma hjól og vespur innandyra, ef það hefur tök á, og umráðamenn ökutækja er minntir á að hafa ekki hluti í augsýn, sem kunna að freista þjófa. Viðbúið er að hinir illa fengnu hlutir séu boðnir til kaups og því nauðsynlegt að hafa varan á,“ segir á sama stað.

„Lögreglan ítrekar jafnframt að fólk láti vita um grunsamlegar mannaferðir (taki ljósmyndir ef slíkt er mögulegt) og að það skrifi líka hjá sér, t.d. bílnúmer eða jafnvel lýsingar á fólki, ef eitthvað óvenjulegt á sér stað í umhverfi þess.“

Lögreglan segir: „Upplýsingum má koma á framfæri í síma 444-1000, með einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eða í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is Ef óskað er eftir skjótri aðstoð lögreglu vegna yfirstandandi innbrots skal undantekningarlaust hringja í 112.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: