- Advertisement -

Velferð barnanna ekki höfð að leiðarljósi

Umræðan/Bakkakot: Þröstur Ólafsson hagfræðingur skrifaði:

Fyrst er full ástæða til að þakka þáttargerðarfólki RÚV þennan vel gerða og upplýsandi þátt. Það er mikil guðsblessun að ekki hafi tekist að aflima RÚV, sem verið hefur annað af tveimur sígildu baráttumálum Sjálfstæðisflokksins um áratuga skeið.

Ekki sé ég hvernig plástrað verður yfir þessi ósköp, þótt það verði vissulega reynt. En þar sem hér er um að ræða glæpsamlegt barnaverndar mál sem á sér fjölda hliðstæðna víða um land, hljóta rætur þess að liggja í menningu okkar og lifnaðarháttum. Þarna er hyldýpi sem viðkvæmt er að snerta. Við pössum vel hvert uppá annað að segja ekkert „ljótt eða niðrandi“ sem gæti sært. Við þegjum. Viljum ekki kallast slefberar. Það þurfti útlenda dýraverndara til að beina sjónum okkar að blóðmerahaldi. Einu opinberu viðbrögðin voru: þetta skapar gjaldeyri, atvinnu og tekjur í sveitina. Flott réttlæting. Kvalarfullt stór hvaladráp framlengt, þar til Kristjáni brast örendið. Aldrei að víkja. Listinn er lengri en þetta dugar. Lausleg yfirferð mín bendir til þess að börnum hafi gjarnan verið komið fyrir í fáförnum sveitum á bæjum sem síður voru í alfaraleið, þar sem vanhagaði um vinnuafl. Vinnan göfgar manninn.

Ekki var runninn sá upplýsti tími, þegar vitað er að mesta hættan á einrænu og einhvers konar heiftarhug í garð fjarlægs og meira gefandi lífs. Reiður lífsleiði. Einrænir bræður drekka sig fulla og annar kálar hinum. Engin þekkt ástæða. Smábýlið sem krefst óhóflegrar vinnu en skilar sáralitlum tekjum hvað þá gefandi félagsskap, hlýtur að valda fólki sem stritað hefur þar alla sína hundstíð og kattarævi hugarvíli. Innibyrgð reiði. Á sama tíma gekk maður undir manns hönd við hvetja smábýlendur til að halda ótrauð áfram. Landið verði allt að haldast í byggð. Af hverju ?

Sérstaklega þyrfti að gegnumlýsa svokallaðar barnaverndarnefndir og samspil þeirra og sveitarstjórna, sem vissulega hafa ekki velfarnað barnanna alltaf að leiðarljósi.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: