- Advertisement -

Verðum að standa vörð um heimilin

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, skrifar:

Ein stærstu hagstjórnarmistökin eftir bankahrunið 2008 var að veita ekki venjulegu fólki raunverulegan sveigjanleika til að takast á við greiðslufall vegna atvinnumissis eða stökkbreytingu lána. Aðgerðarleysi og þjónkun stjórnvalda við fjármálakerfið endaði með skelfilegum afleiðingum sem fólk er jafnvel að berjast við enn í dag, tæpum tólf árum seinna.

Nú gæti svo farið að niðursveiflan sem COVID- 19 veiran gæti haft í för með sér væri atvinnuleysi á borð við það sem hér varð eftir hrun, ef verstu spár ganga eftir. Hlýtur sú spurning að vakna hvort stjórnvöld ætli enn og aftur að slá skjaldborg um fyrirtækin og fjármálakerfið en skilja fólkið í landinu eftir óvarið. Tryggja verður húsnæðisöryggi almennings t.d. með frystingu afborgana húsnæðislána og sérstökum aðgerðum fyrir fólk á leigumarkaði.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: