- Advertisement -

Verkamannavinna var oft skelfilegt strit

Umræðan/Facebook: Egill Helgason skrifaði:

„Ég rakst á myndband sem var merkt Miðflokksmönnum og fylgdi með texti þar sem stóð eitthvað á þessa leið: „Gerum Ísland frábært aftur.“ Myndefnið var mestanpart frá árunum stuttu eftir stríð, ég kannaðist við mikið af því úr starfi mínu – þykir reyndar líklegt að þarna hafi það verið tekið ófrjálsri hendi. En ég fór að velta fyrir mér boðskapnum.

Á þessum árum var vissulega framfarasókn á Íslandi. Þjóðin hafði auðgast í stríðinu. En þetta voru allt aðrir tímar en nú. Í landinu voru aðeins tveir menntaskólar – fæstir höfðu kost á að fara í langskólanám. Konur voru á lægra kaupi en karlar – voru reyndar upp til hópa við heimilisstörf þar sem karlar tóku lítinn sem engan þátt. Voru í raun í þjónustuhlutverki. Þær voru ekki á þingi eða í forystu í atvinnulífi. Þarf ekki að taka fram að samkynhneigt fólk var í algjörum felum. Bændur voru á þessum tíma að flosna í stórum stíl upp af jörðum sínum – svo horfði við landauðn í sumum sveitum. Sjómennska var ennþá mjög háskaleg atvinna – fjöldi karla drukknaði í hafi á hverju ári. Verkamannavinna var oft skelfilegt strit.

Ævilengd var mun styttri á þessum árum en nú og meðferð á fötluðu fólki myndum við núorðið telja óbærilega. Í Kópavogi var rekið það sem kallaðist Fávitahæli. Húsnæðismál voru í miklum ólestri, margt fólk bjó í lélegum saggafullum húsum, herskálar frá því í stríðinu voru fullir af fólki. Fæstir komust nokkurn tíma til útlanda. Vinnuvikan var lengri en nú, réttur til sumarleyfa hafði komist á en þau voru mun styttri. Það var skömmtun á alls konar varningi, bifreiðum, byggingavörum, fötum, skóm, neysluvörum. Mikil spilling þreifst í kringum skömmtunarkerfið – og almennt má telja að stjórnmála- og viðskiptaspilling hafi verið mjög ríkjandi hér á þessum árum.

Svona má lengi rekja söguna – má auðvitað segja á móti að fólk hafi verið nægjusamara, einn helsti gallinn á samfélaginu sem við lifum í er líklega hinn ægilega ofgnótt. En sennilega myndu þó fæstir vilja skipta.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: