- Advertisement -

Verksmiðjur Bakkavarar eru eins konar helvíti

Gunnar Smári skrifar:

Samkvæmt þessu er businessmódel Bakkavarabræðra; að láta fólk á lágmarkslaunum, sem vart getur framfleytt sér og býr við mikil þrengsli í leiguhúsnæði (þar sem aðrir businessmenn blóðmjólka þessa vinnuþræla), skera, snyrta og pakka matvælum svo að þú getir stytt þann tíma sem fer í matseld; ekki aðeins siðferðislega svívirðileg heldur skaðleg heilsu allra og í raun smitgátt út í samfélagið á tímum faraldurs. Verksmiðjur Bakkavarar er þannig eins konar helvíti sem spúa eitri í allar áttir, grafa undan lífskjörum og velferð verkafólksins, magna upp ójöfnuð í samfélaginu og smitar viðskiptavinina af farsótt. Líklega er best að brenna þetta allt og gleyma þessum kafla mannkynssögunnar þegar Bakkavararbræður voru álitnir snillingar.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: