- Advertisement -

Landsvirkjun hefur fylgt lögum í einu og öllu

„Vekur það óneitanlega spurningu um hvort erindið sé liður í áætlun móðurfélagsins um að þvinga niður raforkuverð á starfssvæðum sínum. “

„Landsvirkjun barst tilkynning í morgun um að Norðurál hefði sent erindi til Samkeppniseftirlitsins varðandi kaup á skammtímaorku í sumar. Þar kemur fram að Norðurál telji að Landsvirkjun hafi misnotað stöðu sína sem markaðsráðandi aðili við verðlagningu skammtímaorku. Þessum fullyrðingum er alfarið vísað á bug. Landsvirkjun fer ávallt að ákvæðum samkeppnislaga í starfsemi sinni, m.a. þeim ákvæðum sem banna markaðsráðandi fyrirtækjum að selja orku undir kostnaðarverði og hafa þannig neikvæð áhrif á samkeppni,“ segir í tilkynningu frá Landsvirkjun.

„Rétt er að taka fram, að Landsvirkjun hefur ekki erindi Norðuráls til Samkeppniseftirlitsins undir höndum. Í fréttaflutningi hefur hins vegar komið fram að Norðurál hafi í allnokkur ár ekki haft nægjanlega orku í gegnum langtímasamninga til að halda uppi fullri framleiðslu í álverinu. Álverið hafi tímabundið þurft að kaupa raforku til að fylla upp í skerðingar vegna viðhalds hjá öðrum orkuframleiðendum sem Norðurál kaupir orku af, en Landsvirkjun sér Norðuráli aðeins fyrir um 35% af orkuþörf álversins, sem hefur samið við aðra framleiðendur um 65% orkunnar. Verð Landsvirkjunar á skammtímaorku hefur verið við kostnaðarverð síðastliðin misseri og því ekki verið borð fyrir báru til að selja það lægra verði. Landsvirkjun ber að sjálfsögðu ekki ábyrgð á skerðingum annarra raforkuframleiðanda og er ekki eini raforkubirginn sem álver og aðrir viðskiptavinir geta leitað til vegna kaupa á skammtímaorku.“

Og lokum segir Landsvirkjun:

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Erindi Norðuráls til Samkeppniseftirlitsins helst í hendur við tilkynningu móðurfélags þess, Century Aluminium, í gær þar sem tilkynnt var að álveri fyrirtækisins í Suður-Karólínu yrði lokað í desember nk. ef ekki fengist lægra raforkuverð. Vekur það óneitanlega spurningu um hvort erindið sé liður í áætlun móðurfélagsins um að þvinga niður raforkuverð á starfssvæðum sínum.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: