- Advertisement -

Vill taka við af Árna

Umræðan/Facebook:

„Krísur eru kjörin tækifæri til breytinga og það er mikilvægt að við nýtum núverandi áskoranir á alþjóðavettvangi til umbóta hér heima. Óvissa hefur aukist, tollar hafa hækkað og viðskiptahagsmunum er óhikað beitt í deilum ríkja sem áður töldust traustir bandamenn. Með áherslu á einföldun regluverks, aukna skilvirkni í rekstri hins opinbera, öflugri innviðafjárfestingu og sterkara hvatakerfi nýsköpunar er mögulegt að bæta innra og ytra umhverfi fyrirtækja í fjölbreyttum greinum iðnaðar verulega og styrkja þannig grundvöll íslensks efnahagslífs. Með þeim hætti getum við unnið gegn áhrifum óvissu og óhagstæðra ytri aðstæðna á íslenskt efnahagslíf,“ skrifaði Þorsteinn Víglundsson fyrrverandi ráðherra.

Þorsteinn hefur upplýst að hann hafi hætt í Viðreisn vegna þátttöku flokksins í ríkisstjórn með Flokki fólksins.

Þorsteinn sækist eftir að verða næsti formaður Samtaka iðnaðarins.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: