- Advertisement -

Viltu „vinna“ milljarð?

Þú ert sæmdur Riddarakrossi hinnar íslensku Fálkaorðu í boði hjá Forseta Íslands.

Ragnar Önundarson skrifar:

Nú glaðnar til, séð er fyrir endann á kófinu. Eignaverð hefur farið hækkandi, tækifærin blasa alls staðar við. Þess vegna er tímabært að rifja uppskrift velgengninnar upp:

Viltu „vinna“ milljarð? Viltu svo „vinninginn heim“? Þá er þetta aðferðin:

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þú tekur 10 milljarða að láni.

1. Þú stofnar „eignarhaldsfélagið“ Rán ehf. og tekur milljarð að láni hjá kunningja þínum í bankanum eftir að hafa borgað „bónus“ til hans með „þóknun skv. Gjaldskrá“.

2. Þú stofnar „aflandsfélag“ Highway Robbery Inc. í Panama eða Tortóla með aðstoð kunningja þíns í bankanum og millifærir það sem eftir er af milljarðinum þangað.

3. Þú sérð enga leið til að eignarhaldsfélagið geti borgað afborganir og vexti og það fer í þrot. Bankinn afskrifar lánið þegjandi og hljóðalaust þrátt fyrir að hafa allar upplýsingar um hvað varð um peningana og hvert þeir fóru. Þú borgaðir svo góðan „bónus“ að þeir fara ekki að vera með nein leiðindi.

4. Til öryggis stofnarðu fleiri aflandsfélög með aðstoð erlends banka og millifærir áfram nokkrum sinnum í þeirri von að það „snjói í sporin“. Allt kostar þetta og þú þarft nú sjálfur að lifa eins og aðrir, svo nú „áttu“ bara 900 millur.

5. Þú bíður í nokkur ár en svo sérðu tilboð Seðlabankans um að taka þátt í gjaldeyrisútboði. Þú tekur því og færð þriðjungs ábót á „vinninginn“ og átt allt í einu 1.200 milljónir. Seðlabankinn tryggir þér nafnleynd svo ekki sé unnt að lesa saman nöfn þátttakenda við afskriftalistana.

6. Þú kaupir þér teinótt jakkaföt og gerist „fjárfestir“. Ásamt félögum þínum kaupir þú banka af ríkinu, sem gleðst yfir vel heppnaðri einkavæðingu og lýsir yfir sigri og fagnar að samkeppni virðist komin í bankaþjónustu.

7. Þú ert kosinn formaður bankaráðs og lætur bankann sinna ýmsum menningar- og velferðarmálum og flytur ávörp af því tilefni.

8. Þú ert sæmdur Riddarakrossi hinnar íslensku Fálkaorðu í boði hjá Forseta Íslands.

9. Þú gerir samkomulag við kollega þína í hinum bönkunum um að bankarnir láni ykkur í kross, svo þið þurfið ekki að skulda í eigin banka. Það er ekkert óeðlilegt við það, þú ert jú „fjárfestir“.

10. Þú tekur 10 milljarða að láni og … sjá liði 1-8, nema nú er það Stórriddarakross auðvitað.

Til vara:  Þú átt tilbúna fréttatilkynningu ef eitthvað fer úrskeiðis sem segir 1) Þessi aflandsfélög voru aldrei notuð til neins, 2) auk þess sem mikið tap varð af þeim, og 3) greiddir voru skattar af þessu öllu saman, auk þess sem þú manst ekki í hvaða landi félögin áttu heima.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: