- Advertisement -

Vorið til vinstri

Umræðan: Birgir Dýrfjörð rafiðnaðarmaður skrifaði:

Nú er rædd hugmynd um sameiginlegt framboð smærri flokka og hópa í borginni, sem kenna sig við félagshyggju. Tilgangur þannig framboðs er, að ná þeim lýðræðislega styrk sem þarf til að geta forðað íbúum Reykjavíkur undan borgarstjórn, sem yrði á valdi fárra öflugra fyrirtækja, sem ráða öllu í Sjálfstæðisflokknum í dag.

Rétt eftir áramót 1990 var fundur um samskonar hugmynd í turnherbergi Apóteks Reykjavíkur.

Þar voru saman komnir fulltrúar Alþýðuflokks, Framsóknarflokks, Alþýðubandalags og Samtaka um kvennalista samtals 9 manns. (Sjá bók Ásgeirs Hannesar Eiríkss. Ein með öllu Bls. 166-167)

Satt best að segja fór umræðan á fundinum fljótt í þvarg um áherslur flokkanna í lands- og borgarpólitík og fyrirsjáanlegar deilur þar um.

Niðurstaða fundarins var að of mikill áherslumunur flokkanna útilokaði samstarf þeirra.

Umræður um samstarf milli flokka höfðu spurst út og smitað frá sér.

Félagshyggju sinnað fólk í Háskólanum hafði myndað samtök sem hétu Röskva.

Fólk á þeirra vegum hvatti mjög til stofnunar nýs framboðs og hét því stuðningi.

Innan Aþýðubandalagsins var vaxandi óánæga með stjórnarhætti og ákvarðanir og öflugur hópur stofnaði samtökin Birting. Félagar hennar hvöttu til sameiginlegs framboðs félagshyggjufólks.

Þegar hér var komið hófst síðari þáttur til að koma á sameiginlegu framboði. Þá höfðum við lært af fyrri reynslu að ræða það sem við vorum sammála um en ekki gamlar flokkaþrætur.

Borgarmálaráð

Ákveðið var að stofna borgarmálaráð sem hefði fullt forræði yfir ákvörðunum verðandi borgarfulltrúa. Alþýðuflokkurinn ákvað að vera ekki formlegur aðili að framboðinu en lýsti yfir stuðningi við það og afsalaði sér rétti til íhlutunar um mál borgarmálaráðs listans.

Þess í stað krafðist flokkurinn að við val á frambjóðendum væri ákvæði um opið prófkjör og að flokkurinn gæti tilnefnt frambjóðendur í prófkjörið og að engar kröfur yrðu gerðar um pólitíska fortíð frambjóðenda aðeins það, að þeir hétu heilindum við jafnaðarstefnuna.

Þessi ákvæði opnuðu leið til að á listanum gat verið óflokksbundið fólk. Þau leiddu af sér að í fimm efstu sætum náðu kjöri tveir óflokksbundir, tveir úr Alþýðubandalagi og einn krati.

Pólitísk fortíð skipti engu máli því öll voru þau einlægir jafnaðarmenn.

Með þá hugsun að leiðarljósi varð Nýr vettvangur til, hann fékk tvo borgarfulltrúa.

Lærum af reynslunni

Nú eru umræður um sameinað framboð fleiri flokka sem boða félagshyggju.

Það framboð hefur fengið vinnuheitið „Vorið til vinstri“.

Við þau sem þar eru að verki vil ég segja: Sameinist um það sem þið eigið sameiginlegt sleppið öllu þvargi um annað.

Takist það þá verður til eftirsóknarvert framboð og pólitískur ávinningur fyrir borgarbúa.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: