- Advertisement -

Yfirlætið og fyrirlitningin sem Trump sýnir Dönum og Grænlendingum er sláandi

Umræðan/Facebook: Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra, skrifaði:

Það er sannarlega rétt sem Þorgerður Katrín utanríkisráðherra segir að við stöndum á krossgötum þegar kemur að næstu skrefum í þróun þeirrar heimsmyndar sem byggst hefur upp frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Sú mynd er að teiknast upp að Nató gæti staðið frammi fyrir þeirri fáránlegu stöðu að Bandaríkin réðust á Norðurlandaþjóð.

Yfirlætið og fyrirlitningin sem Trump forseti Bandaríkjanna sýnir Dönum og Grænlendingum er sláandi (fyrir utan staðreyndavillurnar, en þær eru svosem hættar að vera sláandi). Það mætti einhver minna Bandaríkjaforseta á hversu sterkir bandamenn Danir hafa reynst Bandaríkjunum í gegnum tíðina.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: