- Advertisement -

Íbúafundur mótmælir vernd alls vatnasviðs Skjálfandafljóts

Flokkað í verndarflokk án samráðs við landeigendur.

Íbúafundur sem haldinn var í Kiðagili í Bárðardal s.l mánudag, samþykkti ályktun þar sem mótmælt er að allt vatnasvið Skjálfandafljóts verði flokkað í verndarflokk án samráðs við landeigendur, en fundarefnið var tillaga til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða. (Lögð fyrir Alþingi á 145. löggjafarþingi 2015-2016).

Eftirfarandi ályktu var samþykkt á fundinum.

Íbúafundur, haldinn í Kiðagili í Bárðardal 3. apríl 2017, mótmælir því afdráttarlaust að áætlun um vernd og orkunýtingu landssvæða geri ráð fyrir því að allt vatnasvið Skjálfandafljóts verði flokkað í vernd án samráðs við landeigendur.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Óskað er eftir því að fulltrúar landeigenda að Skjálfandafljóti fái að mæta á fund umhverfis-og samgöngunefndar Alþingis til að kynnar nánar sjónarmið landeigenda.

 

 

 

 

 

Sjá nánar inná 461.is


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: