- Advertisement -

Óviðunandi vantraust innan Alþingis

„Ég tel þá líka fulla ástæðu til þess að í leiðinni sé skoðaður sá trúnaðarbrestur sem hefur orðið t.d. með birtingu þessara upplýsinga í fjölmiðlum og tölvupóstar á milli þingmanna sem rata í fjölmiðla. Ég lýsi því yfir að ég er tilbúinn til þess að sá sem forseti kýs að tilnefna megi fara í mitt pósthólf og skoða allar þær sendingar sem ég hef sent út og ég skora á aðra þingmenn að gera það sama. Það er algjörlega óviðunandi að við búum við það vantraust sem er að myndast hér innan þingsins,“ sagði Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í umræðu um stöðu félagsmálaráðherra, vegna máls Braga Guðbrandssonar.

Þar á hann við meintan leka á gögnum frá Alþingi til Stundarinnar.

Jón sagði að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd eigi að rannsaka málið. „Það er engum blöðum um það að fletta að margt í okkar störfum byggir á trúnaði og trausti. Mörg þau mál sem við fjöllum um þarf að fjalla um með viðeigandi hætti, þau eru misviðkvæm,“ sagði Jón.

 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: