- Advertisement -

Toyota á Íslandi innkallar 4309 bíla

Neytendur Toyota á Íslandi innkallar 4309 Yaris og Corolla bifreiðar af árgerðum 2001 til 2006. Ástæðan er galli í öryggispúðum, röng hleðsla í drifbúnaði öryggispúðanna getur rifið gat á drifbúnaðinn sjálfan sem veldur því að púðinn blæs ekki rétt út við árekstur og virkni hans verður ekki eins og til er ætlast.
Innköllunin er á heimsvísu og hér á landi gætu verið Toyota bílar af gerðunum Tundra og Sequoia framleiddir í Bandaríkjunum með þessari gerð af öryggispúðum.

Eigendur slíkra bíla geta snúið sér til næsta Toyota þjónustuaðila sem getur aflað upplýsinga um hvaða Toyota bílar framleiddir í Bandaríkjunum eru í þessari innköllun.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: