Facebook:
„Ég sagði á sínum tíma að vopnahléstillögur um Gasa væru í raun tillögur um uppgjöf Hamas, þó ekki skilyrðislausa uppgjöf. Sama má segja um framkomnar tillögur Bandaríkjanna til að binda enda á stríð Rússlands við Úkraínu. Þetta eru tillögur um uppgjöf Úkraínu, þó kannski ekki án skilyrða. En í grunninn eru sum skilyrði samkomulagsins talsvert óhagfelldari fyrir Úkraínu en það sem Hamas þurfti að sætta sig við,“ skrifaði Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar Alþingis.
„Ef það friðarplan sem Úkraína fær inn á sitt borð væri heimfærð inn á Gasasvæðið fengi Ísrael að innlima stóran hluta Gasa með formlegum hætti og viðurkenningu alþjóðasamfélagsins. Orkuver Gasa þyrftu að senda helming orku til Ísrael, hebreska yrði gerð að opinberu tungumáli á Gasa. Palestínumenn þyrftu að borga Bandaríkjunum fyrir vernd.
Viðleitni til að stöðva stríðið er til eftirbreytni. En vandi tillagnanna sem við horfum fram á er að þær koma svo mikið til móts við óskir Rússlands og svo lítið við þarfir Úkraínu, að Úkraína mun ekki geta fallist á þær og því munu þær varla leiða til friðar. Uppleggið er allt eins og tryggja þurfi öryggi Rússlands frá hinum ógnandi nágrönnum þeirra í Úkraínu. Það er kannski ágætt að muna allltaf hver það var sem réðst á hvern,“ skrifaði Pawel.