- Advertisement -

Hef mikla andúð á óheiðarleika og siðleysi

Guðmundur Þ. Ragnarsson:

Þau mættu skrifa margar greinar um raunveruleikann sem blasir við, að framundan er ekkert nema skattahækkanir, niðurskurður, samdráttur, atvinnuleysi og önnur óáran.

Facebook:

Guðmundur Þ. Ragnarsson, fyrrverandi formaður VM, skrifaði:

Það er ekki gæfulegt að fylgjast með pólitíkinni þessa dagana. Á sama tíma og ýmis óveðurský hrannast upp í efnahagsmálunum, virðist það vera aðalmálið undanfarna daga hvernig formaður Sjálfstæðisflokksins svaraði spurningu einhvers þáttastjórnanda um ráðamenn í Brussel hvort þeir væru glæpamenn.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Fram á ritvöllinn hafa farið Froðusnakkurinn (Flautaþyrilinn) Sigmar Guðmundsson, efnahagshryðjuverkamaðurinn (Verðbólgu- og vaxtakóngurinn) Dagur B. Eggertsson og guðfaðir (Fegrunarpenni) Viðreisnar, Þorsteinn Pálsson auka annarra stjórnarþingmanna að velta sér upp úr þessu.

Ég ætla að taka þátt í þessum orðaleik og uppnefna þá, ég hef gaman af því.

Hinsvegar hef ég miklu meiri áhyggjur af ástandinu í efnahagsmálunum hér heima heldur en hvort einhver í Brussel var kallaður krimmi.

Öll þessi skrif eru sett fram til að draga athyglina frá ástandinu hjá okkur í efnahagsmálunum, það ættu allir að sjá í gegnum það. Skrifin eru sett fram til að draga athyglina frá getuleysi stjórnvalda, það voru engar lausnir, plön eða sleggja.

Frekar hefði ég viljað sjá skrif þessara einstaklinga snúast um tillögur að lausnum í okkar efnahagsmálum í rauntíma. Ekki um hvernig allt verður eftir inngöngu í Evrópusambandið án þess að færa rök fyrir því.

Þessir einstaklingar ættu freka að velta sér upp úr þeim mikla óheiðarleika og siðleysi sem sett var fram fyrir síðustu kosningar þar sem logið var blygðunarlaust að kjósendum, af nægu er að taka þar.

Enda er óánægjan að magnast upp í samfélaginu eftir því sem fólk er betur að átta sig á því að það var haft að fíflum í síðustu alþingiskosningum.

Þau mættu skrifa margar greinar um raunveruleikann sem blasir við, að framundan er ekkert nema skattahækkanir, niðurskurður, samdráttur, atvinnuleysi og önnur óáran.

Til að fullkoma óheiðarleikan á að níðast á lífeyrisþegum til að fjármagna reikninginn sem þarf að greiða, til að halda ríkistjórninni saman með stuðningi Flokks fólksins.

Ég er ekki Sjálfstæðismaður og er ekki að verja formann þess flokks. Hinsvegar hef ég mikla andúð á þeim óheiðaleika og siðleysi sem alltaf er að aukast í stjórnmálunum og víða í samfélaginu. Þessi skrif eru eingöngu sett fram til að vekja athyglina á því að það voru engar lausnir, bara innihaldslausar blekkingar til að ná í atkvæði.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: