Stjórnmál:
Vilhjálmur Birgisson skrifar:

Mér finnst glórulaust að selja Landsbankann eins og Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, leggur til. Hún áætlar að með sölunni og niðurgreiðslu skulda geti ríkið sparað 25 milljarða á ári í vexti, eða um 10 milljarða þegar tekið er tillit til arðgreiðslna. Það þýðir að hún reiknar með um 15 milljörðum í árlegan arð. Á þessu ári einu greiddi Landsbankinn 34,9 milljarða í arð, þar af 18,9 milljarða í reglulegan arð og 16,1 milljarð í sérstakan arð. Ég vil sjá hvaða söluverð og hvaða vextir á skuldum ríkisins liggja að baki þessum 25 milljörðum.
Frá árinu 2013 hefur Landsbankinn greitt 245,5 milljarða króna í arð, sem hefur nær allur runnið í ríkissjóð. Í lok september nam eigið fé samstæðunnar 341,6 milljörðum króna. Á fyrstu níu mánuðum ársins hagnaðist bankinn um 33,1 milljarð eftir skatta og arðsemi eigin fjár var 13,3%. Þetta eru verðmætin og afkoman sem við erum að tala um þegar bæjarstjórinn leggur til að selja bankann.
Ég vil að ríkið nýti eignarhald sitt til að gera Landsbankann að samfélagsbanka. Setjum bankanum 2–4% arðsemismarkmið og lækkum útlánsvexti og þjónustugjöld samhliða. Á 50 milljóna króna láni munar einu prósentustigi 500 þúsund krónum í vexti á ári, miðað við óbreyttan höfuðstól. Það eru krónurnar sem fara af reikningnum sem skipta heimilin máli.
Á meðan stjórnvöld eru ekki tilbúin að stíga þetta skref er glórulaust að einkavæða þessa gróðavél. Á meðan heimili og fyrirtæki þurfa að borga það sem ég kalla okurvexti er skárra að arðurinn renni í ríkissjóð. Ríkið á bankann fyrir hönd þjóðarinnar og á að nota það eignarhald til að lækka kostnaðinn sem fólk og fyrirtæki bera í hverjum mánuði.