- Advertisement -

Harka, fyrirvaraleysi og og virðingarleysi

Reykjavíkurborg:

Gauti B. Eggertsson skrifaði:

Því miður sýnist mér erfitt að komast að annarri niðurstöðu en að Reykjavíkurborg sé illa stjórnað í dag. Mér sýnist þetta einhvers konar blanda af fúski og dyggðaskreytingum.

En hvað er ég svo sem að vilja upp á dekk? Jú, um daginn álpaðist ég heim í nokkra daga. Þá viku varð ég vitni að því að fólk var rekið úr starfi með hópuppsögn, án þess að því væri sagt hvers vegna einmitt það varð fyrir valinu. Það sem verra var, komið var fram við fólkið af virðingarleysi. Kona sem hafði unnið hjá borginni frá árinu 2018 var boðuð á fund með fjórtán mínútna fyrirvara. Þar var henni rétt uppsagnarbréf og sagt að fara strax úr húsi.

Þú gætir haft áhuga á þessum

…og svo var
haldin
kveðjuveisla.

Ég vann um árabil í Seðlabanka Bandaríkjanna og hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Þar var fólk líka látið fara, án nokkurs drama. Fólk vann út uppsagnarfrestinn og svo var haldin kveðjuveisla.

Ég varð svo forviða á leiksýningunni í Reykjavík að ég ákvað að setja saman litla grein. Hún er einfalt yfirlit yfir hvað mér sýnist fjögurra áratuga rannsóknir í mannauðsfræði segja um fjöldauppsagnir. Þær benda til að fjöldauppsagnir sem framkvæmdar eru af virðingarleysi valdi sérstaklega miklum skaða, fyrir þá sem fara, þá sem eftir sitja og vinnuveitandann sjálfan.

Ég get ekki betur séð en að borgin hafi brotið í grundvallaratriðum gegn vel þekktum meginreglum góðra stjórnarhátta. Hún sendi 154 uppsagnarbréf á fimm mánuðum. Sagt var upp án fyrirvara, án samráðs og án skýringa til starfsfólks. Í uppsagnarbréfunum sem birt hafa verið afþakkar borgin vinnuna á uppsagnarfresti en greiðir launin. Stæðust allar forsendur reikningsdæmisins í greininni næmi kostnaður borgarinnar 620 til 830 milljónum króna á fyrsta ári, eða 27 til 36 prósentum af uppgefnum árssparnaði. Þá er ótalið það sem á eftir kemur: veikindaleyfi og atgervisflótti næstu ár, þekking sem hverfur og lakari þjónusta. Borgin hefur enn ekki lagt fram mat á því hvað sparast þegar þessi kostnaður er talinn með.

Og hér virðast hafa rekist á tvö sjónarmið. Harkan, fyrirvaraleysið, skortur á skýringum til hvers og eins og virðingarleysið eru algerlega andstæð góðum stjórnarháttum. Harkan hefur hins vegar pólitískt notagildi. Nýr meirihluti vill minnka hið opinbera. Því kann það að hafa verið efst í huga hans að gera þetta með þeim hætti að eftir væri tekið í fjölmiðlum og af almenningi, fremur en að lágmarka raunverulegan skaða.

Dyggðaskreyting.

Reikninginn af leikritinu bera þeir sem sagt var upp, þeir sem eftir sitja og á endanum borgarbúar sjálfir.

Deilt hefur verið um fjárhagsstöðu Reykjavíkurborgar í aðdraganda allra kosninga síðan R-listinn tók við völdum 1994. Það er efni í aðra grein. Hvaða skoðun sem fólk hefur á fjárhagnum getur hann ekki réttlætt þessi vinnubrögð.

Greinin heitir „Hvað segja mannauðsfræði um fjöldauppsagnir Reykjavíkurborgar?“ og hér tengill á greinina.

Fyrirsögnin er Miðjunnar.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: