- Advertisement -

Orðinn meira en langþreyttur á SDG

Björn Þorláksson blaðamaður skrifar: Strategía SDG að hamra á því að hver sem er hefði getað lent í því að vera hleraður, hafandi haft uppi þann munnsöfnuð um annað fólk og minnihlutahópa sem standa höllum fæti , er ekki að virka. Hann líkti samræðum vesalinganna á Klaustri við ósköp venjulegt vinnustaðapartý í viðtali í morgun. Þessi tilraun til að segja okkur öllum að við séum öll skíthælar – þegar enginn sér til – aftengir endanlega íslenska þjóðarsál við siðblindingjann. Svo bætti hann við að það þyrfti hugrekki til að kjósa Miðflokkinn. Uuuu nei. Ég er orðinn meira en langþreyttur á að hafa hann sem mein í íslensku valdasamfélagi, undir fána lýðræðis! Sú stund hlýtur að renna upp að við getum eytt orkunni í eitthvað gagnlegra en að bera hann síendurtekið út úr þinghúsinu…


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: