- Advertisement -

Neytendastofa: Skoðið þóknanir fasteignasala

Neytendur „Neytendastofu vill benda neytendum á að athuga og bera saman kostnað sem þarf að greiða fasteingasölum við sölu íbúðarhúsnæðis en hann getur verið breytilegur milli fasteignasala.“ Þetta kemur fram á heimasíðu Neytendastofu. 

Í könnun Neytendastofu er mikill munur á söluþóknunin á milli fasteignasala. Algengasta söluþóknunin, fyrir einkasölu, er á bilinu 1,7-1,95% en þóknunin er frá 0,1% og upp í 2,95%. Fyrir almenna sölu er algengasta þóknunin á bilinu 2-2,5% en þóknunin er frá 0,1% til 3,5%.

Þessar þóknanir eru flestallar án virðisaukaskatts en þjónusta fasteignasala ber 25,5% virðisaukaskatt. Söluþóknun er stundum sett upp á verðbili sem getur munað 0,5-1 prósentustigi og því virðist þóknunin vera umsemjanleg upp að vissu marki. Aðeins tvær fasteignasölur tóku fasta fjárhæð í söluþóknun fyrir einkasölu en ekki prósentuhlutfall af söluverði. Einnig þarf að hafa í huga hvort að fasteignasalan taki þóknun þó að eignin seljist ekki eða hætt sé við sölu. Neytendastofu hvetur því fólk sem er að huga að sölu fasteigna að athuga vel allan kostnað.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: