- Advertisement -

Hluta- og skuldabréfamarkaðir óþarfir

Gunnar Smári skrifar:

Gunnar Smári.

Katrín segir að breyta þurfi „skatt­lagn­ingu þannig að hún þjóni mark­miðum í lofts­lags­mál­um. Það þarf að tryggja að líf­eyr­is­sjóðir og sjóðir hins op­in­bera fjár­festi í græn­um skulda­bréf­um.“ Þarna kemur fram vilji til að leggja kvaðir á lífeyrissjóði, svo það ætti að verða auðvelt að skylda þá til að fjárfesta í endurreisn félagslegs íbúðakerfis, t.d. með því að byggja upp og reka svo sem 20 þúsund íbúðir fyrir fjölskyldur sem búa í dag við okurverð á leigumarkaði.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Annars er það vaxandi umræða meðal Seðlabankafólks í útlöndum að Seðlabönkum beri að mæta loftslagsvandanum með því að fjármagna nauðsynlegar aðgerðir; orkuskipti, skógrækt og hvað eina sem talið er nauðsynlegt, einfaldlega með því að prenta peninga. Það gera þjóðir þegar þær vilja leggja í stór átök, það er engin ástæða til að búa til hluta- eða skuldabréfamarkað kringum þetta.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: