- Advertisement -

„Endurtekið efni frá eftirhrunsárunum“

„Mikil veisla framundan hjá lögmönnum.“

Ragnar Önundarson skrifar:

Fryst lán eru lán í vanskilum. Skuldararnir eru í erfiðleikum, fyrirtæki og heimili. Það er ætlunin að selja bankann með þessum frystu lánum, sem verða metin eins og aðrar eignir bankans, en metin lægra af því þau eru í vanskilum. M.ö.o. er ætlunin að selja kröfur á fólk í erfiðleikum með afslætti til kaupenda. Ekki verður gefinn afsláttur til þeirra sem skulda lánin. Þetta er endurtekið efni frá eftirhrunsárunum. Mikil veisla framundan hjá lögmönnum.

Mín tillaga er sem fyrr að söluandvirði banka verði nýtt til að aðstoða þá sem selt var ofan af eftir hrun. Nú bæti ég því við að ríkið á að halda eftir þeim frystu lánum sem heimilin skulda bankanum og gefa sama afslátt af höfuðstól þeirra og kaupendurnir fá.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: