- Advertisement -

Alkul í Samfylkingunni

Stjórnmál Skrifaði þessa fréttaskýringu fyrir Fréttatímann 21. janúar.

Í Samfylkingunni er tekist á um það sem mestu skiptir í starfi stjórnmálaflokks; forystu og hvert beri að stefna. Meiri geta ágreiningsefnin varla orðið.

Af samtölum við forystufólk í Samfylkingunni er ljóst að það fólk skiptist í tvo hópa, misstóra. Sá stærri er í andstöðu við formann Samfylkingarinnar, Árna Pál Árnason, og sá minni styður formanninn. „Það eru engir flokkadrættir,“ sagði einn af voðmælendunum meðan aðrir segja allt annað.

ÖssurDeilt er um hvar Samfylkingin eigi að vera í hinu hefðbundna litrófi stjórnmálanna. „Á síðasta kjörtímabili færðist Samfylkingin svo langt til vinstri að hún var nánast runnin saman við Steingrímsvænginn í VG,“ sagði Össur Skarphéðinsson í viðtali við Kolbrúnu Bergþórsdóttur haustið 2013, þá var Kolbrún blaðamaður á Mogganum.

Þá stöðu hefur Árni Páll rætt oftar en einu sinni í útvarpsþættinum Sprengisandur á Bylgjunni. Hann hefur sagst ekki vilja keppa við vinstri græna um hvor flokkurinn eigi að vera meira til vinstri. Samfylkingin eigi að tala fyrir meira frjálslyndi og að þörf sé á að opna flokkinn, fá til liðs við hann fólk sem vilji tala á þeim nótum. Til þess að Samfylkingin verði klassískur krataflokkur.

Vegna ágreinings um ágæti formannsins og annarra í forystunni er lítið talað um pólitískar stefnur og á hvaða stefnu Samfylkingunni ber að vera.

Afdrifarík afstaða formannsins

Flokksstjórn Samfylkingarinnar kom saman á Akranesi um miðjan nóvember síðastliðinn. Fyrir um tveimur mánuðum. Þar hafnaði Árni Páll að landsfundi, og þar með forystukjöri, yrði flýtt. Afstaða formannsins féll í grýttan jarðveg.

Forysta verður kjörin í allsherjaratkvæðagreiðslu í nóvember og landsfundur verður í febrúar 2017. Þá tekur ný forysta við, svo framarlega sem sú verður niðurstaða kjörsins.

Er ekki afleitt að það gerist svo skömmu fyrir kosningar? „Nei, nei. Það reddast,“ sagði einn sem rætt var við. Aðrir eru ekki eins vissir að þetta reddist. Flestir eru á því máli að þetta sé þröng staða. Forystukjörið verður í nóvember og í því geta allir félagar í Samfylkingunni tekið þátt. Það verður rafræn kosning og fari svo að kosin verður ný forysta tekur hún ekki við fyrr en á landsfundi mörgum vikum síðar. „Þetta er afleitt með öllu,“ sagði einn af þeim sem talað var við og flestir hinna töluðu á svipuðum nótum.

Bitnar á flokksstarfinu

Ekki er nokkur vafi á að átökin, eða kannski er réttara að segja samskiptaleysið, bitni á öllu starfi flokksins.

„Mér finnnst það nú merkilega gott þrátt fyrir allt,“ var eitt svarið. Annar sagði allt starf og anda innan flokks taka mið af stöðunni, Samfylkingarfólki fagni orðið mælist fokkurinn yfir tíu prósentustigum. „Flokkurinn er desperant.“

Einn sagðist vonast til þess að Árni Páll sjái hver staðan hans er og hann hætti, rétti varaformannium, Katrínu Júlíusdóttir, keflið.

„Ég verð formaður svo lengi sem flokkurinn vill hafa mig sem formann.“ Þetta er afstaða Árna Páls Árnasonar, sem hefur talað skýrt hvað þetta varðar. Það er fjarri Árna Páli að axla einn, eða því sem næst, ábyrgð á stöðu Samfylkingarinnar. Sem er vægast langt undir væntingum flokksfélaga.

Fjörutíu prósenta fylgistap

Sigríður Ingibjörg IngadóttirStóra breytingin á fylginu, segja viðmælendur, varð eftir hinn ótrúlega vonda landsfund í mars 2015. Fyrirvaralítið bauð Sigríður Ingibjörg Ingadóttir kost á sér til formennsku. Skoraði Árna Pál á hólm. Öll munum við þetta. Árni Páll hélt formennskunni á einu atkvæði. Einu atkvæði. „Það er ósanngjarnt að kenna henni einn um. Ef hún hefði ekki gefið kost á sér gegn Árna Páli hefði óánægjan birst með öðrum hætti. Á landsfundinum eða eftir hann,“ sagði margreyndur þingmaður Samfylkingarinnar.

„Aðför,“ segja stuðningsmenn Árna Páls og efast ekki um að Jóhanna Sigurðardóttir, hafi átt drjúgan þátt í framboði Sigríðar Ingibjargar.

Aðrir túlka framboðið sem áhlaup frá vinstri. Að Árni Páll sé of hægri sinnaður. Kannski hefði verið betra fyrir mig persónulega hefði ég tapað í kosningunni. En ég vann og mér ber að starfa samkvæmt því, á þessa mæltist Árna Páli Árnasyni í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni síðastliðið haust.

Skömmu fyrir landsfundinn mældi Þjóðarpúls Gallup fylgi Samfylkingarinnar 17,1 prósent. Nokkrum dögum síðar mældist það mun minna og í hverri mælingunni af annarri hefur fylgið tínst af flokknum. Fór lægst í rúm níu prósent en mælist nú 10,4 prósent. Frá landsfundinum hefur Samfylkingin tapað rétt um fjörutíu prósentum fylgsins.

Í nokkurn tíma þar áður hafði fylgið verið á milli fimmtán og tuttugu prósent. „Aðför,“ segja

Ekki sjáanlegar sættir

 

Þarna er stóra málið. Árni Páll og svo flest hin. Erfitt er að sjá að forystufólkið nái að vinna saman. Það er leitað að formannsefni, til að taka við af Árna Páli eða fara gegn honum, hætti Árni Páll Árnasonhann ekki sjálfviljugur. Meðan sumir segja ekki sanngjarnt að kenna honum einum um afleidda stöðu Samfylkingarinnar meðan aðrir segja hann hafa misst af þeim tækifærum sem hann hafði til að bæta stöðu flokksins. Hann geti einfaldlega ekki meir

En hver á að taka við? Össur Skarphéðinsson? Nei. Svo segja þeir sem næst honum standa. Össur féll í formannskjöri þegar svilkona hans Ingibjörg Sólrún Gísladótti fór gegn honum. Undir forystu Össurar náði Samfylkingin um 32 prósenta fylgi. „Hann á það og það yrði fráleitt af honum, með þá sögu, að taka við flokknum nú þegar hann mælist með rétt um tíu prósenta fylgi.

Hver þá? Helgi Hjörvar eða Katrín Júlíusdóttir? Bæði tvö eru oft nefnd. Katrín er varaformaður og sem slíkur er hún í æðstu forystu flokksins. Helgi Hjörvar er þingflokksformaður og þar með er hann einnig hluti af æðstu forystu flokksins. Hvaða endurnýjun yrði af þeim? Þetta er stór spurning, svo stór að við henni er ekkert svar. Þegar kemur að umræðu um forystuna er allt í svo mikilli þoku. „Það mun enginn lýsa yfir vilja til forystustarfa fyrr en eftir talsverðan tíma. Að gera það núna yrði algjör afleikur. Það er það langt til kosninganna. Við verðum að bíða,“ sagði einn af þeim sem talað var við.

Vel á minnst, Katrín er varaformaður og viðmælendur, sumir hverjir, sögðu að vegna þess að hún barðist um fyrsta sætið í Kraganum við Árna Pál hafi það ekki orðið til að bæta samskiptin þeirra á milli. Sem eru þegar upp er staðið lítil.

Segja má að allur þingflokkur Samfylkingarinnar sé í óstuði. Því er litið til fólks utan hans. Það verður að rifja upp að við síðustu kosningar fækkaði þingmönnum Samfylkingarinnar úr tuttugu í níu. Allir þingmennirnir voru á þingi fyrir kosningarnar og því voru þeir allir beinir þátttakendur í afhroði flokksins.

Leit að nýju fólki, leit að leiðtoga

„Okkur vantar sterkan foringja. Einhver sem gæti fyllt skarðið sem Ingibjörg Sólrún skildi eftir.“ Þannig mæltist þingmanni. Hins vegar hefur formaðurinn, Árni Páll, talað fyrir að það vanti nýtt fólk, frjálsynt fólk sem er reiðubúið að starfa að framgangi jafnaðarstefnunnar.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri var nefndur í samtölum sem hugsanlegur leiðtogi flokksins. Hann hefur sjálfur ekki sagst hafa áhuga á að taka við flokknum. „Við skulum sjá hvað verður,“ sagði þingmaður.

Aðrir utan þingflokksins eru nefndir. Magnús Orri Schram, fyrrverandi þingmaður, er nefndur. Sumir hvísla nafni Ólafíu B. Rafnsdóttur, formanns VR og varaforseta ASÍ. Er hún í flokknum? „Nei, það held ég ekki,“ sagði einn þeirra sem nefndi hana. Annar sagði að hún væri örugglega í betri stöðu en svo að hætta þar sem hún er og ganga inn í þá óvissu sem forysta í Samfylkingunni er og verður.  „Hún er formaður VR, varaforseti ASÍ og trúlegast næsti forseti þar,“ sagði þingmaður og taldi Samfylkinguna ekki getað freistað formanns VR.

Kannski er ekki tímabært að velta hugsanlegum frambjóðendum mikið fyrir sér. Það er ekki komið að þeim þætti. Þar sem forystukosningarnar verða ekki fyrr en í nóvember. Meðan heldur flokkurinn áfram hálflamaður.

Niðurstaðan er einhvern veginn svona; það er forystukreppa í Samfylkingunni, heilindin í samstarfinu er lítil, það er of mikið að segja að hún sé engin,  flokkurinn hefur enga sjáanlega sérstöðu, erfitt er að sjá hvernig Samfylkingunni reiðir af fram að forystkjörinu. Samfylkingin er í óvissuferð.

Sigurjón Magnús Egilsson.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: